Eins árs undirbúningsvinna í súginn Lovísa Eiríksdóttir skrifar 10. ágúst 2013 07:00 Sveinn Margeirsson „
Þessi atburðarás er afskaplega bagaleg fyrir starfsemi fyrirtækisins og markmið um aukna verðmætasköpun í kringum matvælaframleiðslu,“ segir Sveinn Margeirsson, forstjóri Matís, um nýlega ákvörðun Evrópusambandsins (ESB) um að ekki verði undirritaðir fleiri samningar um svokallaða IPA-styrki frá sambandinu. Matís átti von á 240 milljóna króna styrk frá ESB í formi IPA-styrkja vegna þriggja verkefna sem stofnunin sótti um á síðasta ári. Nú liggur hins vegar fyrir að ekkert verður af styrkveitingunni. Sveinn segir að nú verði óneitanlega mun erfiðara fyrir fyrirtækið að fylgja eftir markmiðum sínum. „Það sem við vorum að stefna að í öllum þessum verkefnum var að byggja upp og þróa nýja matvælaframleiðslu og til þess þarf fjármagn,“ bætir Sveinn við en honum þykir staðan sem nú er komin upp afar óheppileg. Verkefnin þrjú snúa að þörungaræktun á Suðurlandi, vöruþróun með uppsjávarfisk á Austurlandi og vistvænni nýsköpun á Vestfjörðum. „Það var lögð mjög mikil vinna í undirbúning þessara verkefna,“ útskýrir Sveinn. Undirbúningur verkefnanna þriggja hefur staðið í um það bil ár og verkefnin eru mikilvægur hluti af áætlaðri starfsemi fyrirtækisins til ársins 2014 að sögn Sveins. Sveinn segist ekki vera bjartsýnn á að hægt verði að keyra verkefnin áfram í óbreyttri mynd án styrkjanna. en ætlar þó ekki að gefast upp. „Þetta er hindrunarhlaup. Nú er komin ein hindrun í veginn sem þarf að leysa.“
Mest lesið Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Erlent Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Erlent „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Fleiri fréttir Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Sjá meira