Skipuleggjendur kannabisræktunar óttast ekki lögreglu Brjánn Jónasson skrifar 2. ágúst 2013 06:15 Lögreglan kom á tímabili upp um nokkurn fjölda stórra kannabisræktana. Nú virðast þeir sem skipuleggja ræktunina vilja fleiri en smærri ræktanir svo það geri minna til þó lögreglan finni einhverjar. Fréttablaðið/Valli
Nokkrir einstaklingar sem skipuleggja umfangsmikla kannabisrækt hér á landi hafa af henni umtalsverðar tekjur. Með því að notast við millimenn telja þeir sig ekki þurfa að óttast refsingu, að því er fram kemur í skýrslu ríkislögreglustjóra um skipulagða glæpastarfsemi. Í skýrslunni segir að íslenski kannabis-markaðurinn sé nú orðinn sjálfum sér nógur. Innflytjendur á fíkniefnum kjósi heldur að flytja inn sterkari efni á borð við amfetamín. Eftirspurn eftir kannabisefnum hefur aukist. Ríkislögreglustjóri telur að skipuleggjendur kannabisræktunarinnar leggi nú áherslu á fleiri en smærri ræktanir. Aukin áhersla á heimaræktun tengist að mati ríkislögreglustjóra ekki eingöngu hruninu og erfiðleikum við að fjármagna innflutning. Í skýrslunni er bent á að sama þróun eigi sér nú stað víðar. Áhugi á innfluttu hassi hafi minnkað, og það teljist „sóðalegur“ vímugjafi.Framboð á amfetamíni stöðugt Þrátt fyrir að lögregla og tollgæsla hafi á síðustu mánuðum stöðvað mjög stórar amfetamínsendingar til Íslands virðist framboðið stöðugt. Eftirspurnin eftir amfetamíni hér er mikil og viðvarandi. Ríkislögreglustjóri telur erlenda hópa umsvifamikla á amfetamín-markaðinum, einkum hópar frá Litháen og Póllandi. Í skýrslunni kemur fram að innflutningur á dýrari fíkniefnum á borð við kókaín hafi minnkað frá því á árunum fyrir bankahrunið. Veruleg eftirspurn var eftir slíkum efnum árið 2008, en nú hefur eftirspurnin dregist saman. Ástæðan sem ríkislögreglustjóri gefur fyrir þeirri þróun eru minni fjárráð fíkniefnaneytenda. Mikið hefur borið á nýrri tegund fíkniefna í Bandaríkjunum. Efnin eru í mörgum tilvikum tæknilega séð lögleg, en þau eru búin til í efnaverksmiðjum í Suðaustur-Asíu. Efnin finnast ekki í lyfjaskrám og því ekki skráð ólögleg. Um leið og lyfin hafa verið greind og orðin ólögleg geta framleiðendur breytt efnaformúlunni lítillega til að búa til nýtt efni sem þá þarf að finna, greina og banna. Í Bandaríkjunum hafa um 11 prósent ungmenna á aldrinum 17 til 18 ára prófað þessi efni. Ríkislögreglustjóri telur tilkomu og ört vaxandi markaðshlutdeild þessara efna áhyggjuefni.Misnotkun á stúlkum þykir viðbjóðsleg Kynferðisleg misnotkun á stúlkum sem leiðst hafa út í neyslu fíkniefna er algeng og viðtekin, segir í skýrslu ríkislögreglustjóra. Þar segir að menn sem hafi árum og jafnvel áratugum tengst íslenskum undirheimum „fyllist viðbjóði“ þegar þeir lýsi þeim veruleika
Mest lesið Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Innlent Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Erlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Innlent Fleiri fréttir Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sjá meira