Skoðun

Hvers vegna dró ráðuneytið skýrsluna til baka?

Margrét Hermanns Auðardóttir skrifar
Á heimasíðu menntamálaráðuneytis birtist þann 22. maí sl. skýrsla um úttekt á stjórnsýslu fornleifarannsókna og fornleifaverndar á Íslandi 1990 til 2010, sem ráðuneytið hafði látið fornleifafræðingi að vinna, þar sem fjallað er um ástandið í fornleifaverndinni (t.d. 150 þús. uppgrafnir forngripir í óskilum).  Þetta er raunar ekki nýtt og meira að finna í greinasafni Mbl. sl. 15 ár. Ef nafn undirritaðrar er slegið í leitarvel kemur fram hörð gagnrýni í viðtölum og aðsendum greinum (m.a. þeirri sem vitnað er til í skýrslunni). 

Skýrsluhöfundur kom fram í Kastljósi RÚV þann 27. maí https://www.ruv.is/sarpurinn/kastljos/27052013-1 og viðbrögðin létu ekki á sér standa, t.d. frá handhafa Hólarannsókna og Fornleifastofnun Íslands (ekki opinber stofnun eins og oftast misskilst, heldur verktaki í einkaeign) auk Fornleifanefndar ríkisins og nýrrar Minjastofnunar Íslands, sem urðu hvað harðast úti í gagnrýninni.  Forstöðumaður Minjastofnunar, sem ber stjórnunarlega ábyrgð, sat fyrir svörum í Kastljósi daginn eftir https://www.ruv.is/sarpurinn/kastljos/28052013-0  Bar ýmsu við en slapp í raun með að gefa málefnalegt svar við nokkrum hlut. Lögmaður Hólarannsókna ýjaði að málssókn í fréttaviðtali hjá RÚV. Ráðuneytið dró skýrsluna til baka af heimsíðu sinni (?) sbr. t.d. Fréttablaðið 29. maí.  Hvers vegna? Og ekkert hefur heyrst meira um málið, er hér þöggun í gangi á kostnað menningararfs þjóðarinnar sem fornleifar hafa að geyma? 

Forstöðumaðurinn nýrrar Minjastofnunar taldi eitt gagnlegt við skýrsluna; að hana mætti nota til að fá meira fjármagn til sinnar stofnunar, sem  undirritaðri fannst nokkuð bíræfið, þar eð ein af brýnustu tillögum skýrslunnar er að Ríkisendurskoðun geri úttekt á málaflokknum. Því að hér er um mikla fjárfestingu af opinberu fé að tefla, sem augljóslega hefur ekki skilað sér.

En með þögninni virðist málið ganga óáreitt áfram. Eftir að þetta „slys“átti sér stað (þ.e. sannleikurinn slapp út hjá sjálfu ráðuneytinu, frekar en gagnrýnisrödd út í bæ sem ekki þyrfti að svara) auglýsir Minjastofnun Íslands 27. maí styrkveitingar sínar úr nýjum Fornminjasjóði þetta árið, þar sem einungis verkefna er getið en ekki styrkþega  (þ.e. ábyrgðarmanna) https://www.husafridun.is/styrkir/fornminjasjodur/uthlutun-styrkja-2013/

Undirrituð spurðist fyrir um þetta 31. maí sem umsækjandi sem ekki hlaut styrk og barst það svar 7. júní að henni sé boðið að gera athugasemdir ef hún svo kysi!

En vandinn er sá að undirrituð fær ekki upp gefið hverjir fengu styrkina (ábyrgðarmenn, rannsóknaleyfishafar)  svo að unnt sé að ganga úr skugga um, hvort hér sé ekki verið að styrkja áfram þá sem brotlegir eru við fornleifaverndarlögin.

Þar sem meginatriðum er ekki svarað með beinum spurningum til forstöðumanns Minjastofnunar Íslands sem úthlutar styrkjunum,  er sá eini kostur eftir (fyrir hönd þeirra umsækjenda sem ekki fá áheyrn) að gera fyrirspurnina opinbera. Þetta getur vart talist sú gegnsæja stjórnsýsla sem boðuð er við úthlutun styrkja úr nýjum Fornminjasjóði, fjármögnuðum af fjárveitingum alþingis ?




Skoðun

Sjá meira


×