Gríma leikur ömmu Grettis ÁP og ÓSK skrifar 30. maí 2013 07:00 Gríma og Grettir Valsbörn eru alin upp á sannkölluðu leikhúsheimili. Á næsta leikári munu systkinin standa hlið við hlið á sviðinu, en þau fara hvort með sitt hlutverkið í uppsetningu Þjóðleikhússins á Óvitunum eftir Guðrúnu Helgadóttur. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM „
Ég leik pabba Guðmundar og systir mín leikur ömmu mína,“ sagði Grettir Valsson, en systkinin Gríma og Grettir koma til með að leika hlið við hlið í nýrri uppsetningu Þjóðleikhússins á Óvitunum. Verkið verður frumsýnt í október. Grettir er aðeins ellefu ára gamall en er ekki ókunnugur leiklistinni því hann hefur leikið í fjölda uppsetninga, til að mynda Galdrakarlinum í Oz, Mary Poppins og Oliver Twist, svo eitthvað sé nefnt. Hann hefur einnig talað inn á fjölda teiknimynda. Gríma, sem er átta ára gömul, mun þreyta frumraun sína á sviði á nýju leikári. Óhætt er að segja að systkinin muni taka sig vel út á sviðinu, hlið við hlið. Það má segja að þeim Gretti og Grímu sé leikhúsáhuginn í blóð borinn því foreldrar þeirra eru leikmyndahönnuðurinn Ilmur Stefánsdóttir og leikarinn og leikskáldið Valur Freyr Einarsson. Það læra börnin sem fyrir þeim er haft. „Þetta var bara alveg hræðilega erfitt val,“ segir leikstjórinn Gunnar Helgason sem stýrir uppfærslunni. Leikritið er eftir Guðrúnu Helgadóttur þar sem börn leika fullorðna og öfugt. Tæplega 1300 krakkar sóttust eftir því að komast á svið og í vikunni var gengið frá ráðningu 30 krakka sem skipta 15 hlutverkum á milli sín. „Þetta var gríðarlega erfiður prósess sem stóð yfir í mánuð. Við enduðum með því að bæta við tveimur hlutverkum til að koma fleirum að en upphaflega voru hlutverkin 28,“ segir Gunnar og bætir við að hann hafi misst svefn yfir leikaravalinu. „Það var mjög leiðinlegt að þurfa að vísa hæfileikaríkum krökkum frá og maður var endalaust að velta fyrir sér hvort maður hefði valið rétt.“ Hópurinn hittist í fyrsta sinn á mánudaginn þar sem þau lásu saman leikritið. „Þá sáum við að við höfðum valið rétt, allir smellpössuðu í sín hlutverk.“ Með önnur hlutverk í verkinu fara meðal annarra Jóhannes Haukur Jóhannesson, Ágústa Eva Erlendsdóttir og Örn Árnason.
Mest lesið Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Ekki rétt sem Halla segir Innlent Fleiri fréttir Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Sjá meira