Telur fornleifaskýrslu ærumeiðandi 28. maí 2013 17:36 Frá Hólum í Hjaltadal
Ragnheiður Traustadóttir, fornleifafræðingur og aðjúkt við Háskólann á Hólum, telur að í stjórnsýsluúttekt mennta- og menningarmálaráðuneytisins á stöðu og þróun fornleifarannsókna á Íslandi sé að finna rangfærslur um störf hennar sem eru til þess fallnar að valda henni álitshnekki og fjártjóni. Hefur Ragnheiður þess vegna leitað til lögmannsstofunnar Rökstóla til að gæta hagsmuna hennar vegna vinnslu, birtingar og umfjöllunar um skýrsluna. Lögmaður hennar, Jónas Fr. Jónsson, hefur skrifað ráðuneytinu bréf þessa efnis. Þar segir: „Sérstaklega skal tekið fram að aldrei var leitað til umbjóðanda míns varðandi upplýsingar eða sjónarmið, hvorki á meðan unnið var að skýrslunni eða áður en hún var birt,“ og spurt á hvaða lagagrunni skýrslan sé unnin og birt; óskað er eftir afstöðu ráðuneytisins til hæfis skýrsluhöfundar til að vinna hlutlæga umfjöllun um efnið og hvað ráðuneytið hyggst gera við skýrsluna. Þá er óskað skýringa á því af hverju skýrslan hefur verið fjarlægð af vef ráðuneytisins. Það var fornleifafræðingurinn Brynja Björk Birgisdóttir sem vann skýrsluna sem var til umfjöllunar í Kastljósi í gærkvöldi og fréttum RÚV. Þar kom fram í stuttu máli að engum skýrslum hefur verið skilað um fjölda ríkisstyrktra verkefna og eftirliti með þeim sé ábótavant. Í skýrslunni eru rakin nokkur fornleifaverkefni sem fjármögnuð eru af opinberum aðilum, þar á meðal að Hólum í Hjaltadal sem Ragnheiður hefur veg og vanda af. Þar segir að Hólaverkefnið sé dæmi um skort á faglegu mati og gagnrýni við styrk- og leyfisveitingar. Eins segir að 150.000 munir sem fundist hafa við fornleifauppgröft hér á landi hafi ekki verið skilað til varðveislu til Þjóðminjasafnsins. Það vekur hins vegar athygli að ráðuneytið fjarlægði skýrsluna fljótlega af vef sínum, auk þess sem eftirfarandi texti var birtur þegar hún var gerð opinber 22. maí. „Skýrsla þessi er unnin fyrir mennta- og menningarmálaráðuneyti af Brynju Björk Birgisdóttur og endurspeglar ekki í öllum tilvikum álit og niðurstöður ráðuneytisins. Ráðuneytið ráðgerir að taka niðurstöður skýrslunnar til athugunar í samvinnu við Minjastofnun Íslands.“
Mest lesið Trans kærasta Robinsons hafi verið „skelfingu lostin“ Erlent Lögreglumenn með brotnar tennur og harðorður Elon Musk Erlent Ekki blettur á ferlinum að missa vinnuna Innlent Þrír handteknir á samkvæmi Vítisengla Innlent Tæplega fimmtíu komast ekki um borð eftir að neyðarrenna var opnuð fyrir mistök Innlent Halla mun funda með Xi Jinping Innlent Jóhannes Valgeir er látinn Innlent Þrír horfnir ferðamenn í Færeyjum Erlent Fordæmir notkun fánans í þágu ótta og rasisma Erlent Segir byssumanninn aðhyllast vinstri hugmyndafræði Erlent Fleiri fréttir Farið yfir Vítisenglamálið og drónavarnir á Íslandi Neysluvatnið óhreint eftir að aurskriða féll Tæplega fimmtíu komast ekki um borð eftir að neyðarrenna var opnuð fyrir mistök Ekki blettur á ferlinum að missa vinnuna Myndband: Lögregla stóð vörð vegna Vítisenglaveislu Útgjöld vegna útlendingamála lækka um þriðjung Halla mun funda með Xi Jinping 40 ára afmæli Þorlákskirkju fagnað í Þorlákshöfn Vítisenglar lausir úr haldi og týndir ferðamenn Mikilvægt að sýna Grænlendingum stuðning Allir þrír lausir úr haldi Forseti Íslands ræðir fyrsta árið í embætti Í fangaklefa grunaðir um ólöglega dvöl Þrír handteknir á samkvæmi Vítisengla Umfangsmikil lögregluaðgerð í Hamraborg Breiðhyltingar bíði í hálftíma eftir lögreglu: „Verður þetta þá ekki bara búið?“ Mikillar vanþekkingar gæti á þjónustu við trans börn Sungið og sungið í Tungnaréttum Jóhannes Valgeir er látinn ÁTVR græði á misnotkun kerfisins sem bitni á úrvali Jóhannes Óli er nýr forseti Ungs jafnaðarfólks ÁTVR stórgræði á misnotuðu kerfi og lögreglustöð í Breiðholti „Það er ekkert ósætti eða rifrildi“ Sýkt vatnsból á Stöðvarfirði eigi brátt að heyra sögunni til Íbúum Bláskógabyggðar fjölgar og fjölgar Fangelsismál í krísu og rannsókn á morðinu á Kirk „Það virðist aldrei vera nein lausn í sjónmáli“ Heimsótti heimaslóðirnar 52 árum eftir nauðlendinguna Sitjandi formaður dregur framboðið til baka á kjördag Stebbi í Lúdó látinn Sjá meira