Óíbúðarhæft vegna skolplyktar Garðar Örn Úlfarsson skrifar 23. apríl 2013 08:00 Á Siglufirði Eyrarflöt er syðst í bænum á Siglufirði. Skolplagnir liggja þar út í krók við landfyllingu neðan við hverfið. Fréttablaðið/Stefán „
Þetta er misjafnt en hefur verið að versna,“ segir Elías Þorvaldsson, einn íbúa við Eyrarflöt á Siglufirði sem sendu bæjaryfirvöldum undirskriftalista með ósk um úrbætur vegna ólyktar af skolplögnum í fjörunni neðan við hverfið. Bærinn er beðinn að stemma stigu við „óþolandi lyktarmengun“ sem stafi frá skolpi sem safnist saman vegna ófullnægjandi frágangs á frárennslislögnum. „Straumarnir ná einfaldlega ekki að koma þessu frá okkur,“ útskýrir Elías. Íbúarnir segja að áður hafi verið fundað með bæjarstjóranum og tveir fundir haldnir í tækninefnd bæjarins síðan án þess að málið hafi verið rætt í nefndinni. Samdóma álit sé að ástandið hafi aldrei verið verra miðað við árstíma. „Þar sem stutt er í sól og sumar með hækkandi lofthita er hætt við að ástandið versni enn frekar og verði þannig að ekki verði búandi á svæðinu,“ segir í bréfi íbúanna sem Elías kveður hafa fengið mjög jákvæðar undirtektir. „Við erum búin að fá svör um að þetta verði vonandi lagfært og erum ánægð með það,“ segir hann.
Mest lesið Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Erlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Máttu tæma lónið Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Fleiri fréttir Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Sjá meira