Alþingi hefur veitt 242 ríkisborgararétt Þorgils skrifar 3. janúar 2013 08:00
Alþingi veitti 39 einstaklingum íslenskan ríkisborgararétt með lögum sem sett voru fyrir jólafrí. Alls hafa 242 frá 60 löndum fengið ríkisborgararétt í gegnum lög frá Alþingi á þessu kjörtímabili. Alþingismaður fagnar nýjum borgurum, en segir þó ástæðu til þess að taka lög um ríkisborgararétt til endurskoðunar. Alls sóttu 73 einstaklingar um ríkisborgararétt til Alþingis á haustþingi, en eins og fyrr sagði fengu 39 sitt í gegn að þessu sinni. Hópurinn kemur víða að þar sem einstaklingarnir eru fæddir í nítján löndum, þar af einn á Íslandi, sem fær ríkisborgararétt á ný. Stærsti hópurinn, þrettán manns, er þó fæddur í Kólumbíu og kom hingað til lands sem flóttamenn á árunum 2005 og 2007. Næst koma einstaklingar frá Bandaríkjunum, Filippseyjum, Serbíu og Póllandi, en frá árinu 2009 hafa líka fjórtán manns sem fæddust á Íslandi fengið ríkisborgararétt. Flestir þeirra hafa að öllum líkindum haft réttinn fyrr á ævinni en svo misst hann af einhverjum orsökum. Lög um íslenskan ríkisborgararétt fela í sér ýmis skilyrði sem umsækjandi þarf að uppfylla, meðal annars um lágmarkslengd búsetu hér á landi. Almennt er miðað við sjö ár, en því til styttingar kemur meðal annars hvort viðkomandi sé frá Norðurlöndunum, sé giftur íslenskum ríkisborgara eða eigi íslenskan ríkisborgara að öðru foreldri. Uppfylli einstaklingur ekki þessi skilyrði er hægt að snúa sér til Alþingis þar sem undirnefnd allsherjar- og menntamálanefndar tekur málið til umfjöllunar og veitir undanþágur eftir atvikum, vegna mannúðarraka, persónulegra aðstæðna eða sanngirnissjónarmiða. Þessi háttur hefur tíðkast um áratugaskeið, en hefur þó verið umdeildur. Skúli Helgason alþingismaður, sem leiddi vinnu undirnefndarinnar, segir fulla ástæðu til þess að endurskoða lög um íslenskan ríkisborgararétt í heild sinni. „Sjálfum finnst mér þetta fyrirkomulag, að Alþingi veiti undanþágur sem þessar, vera sérkennilegt. Lög um íslenskan ríkisborgararétt eru orðin sextíu ára gömul og þó þeim hafi verið breytt í gegnum tíðina finnst mér kominn tími á heildarendurskoðun. Ég teldi eðlilegt að þau yrðu skoðuð í samhengi við þau skilyrði sem þarf að uppfylla til að hljóta hér dvalar- og búsetuleyfi. Eftir lagfæringar á lögunum verði það einungis í undantekningartilfellum sem menn fái undanþágur frá Alþingi." Skúli óskar nýju Íslendingunum velfarnaðar og hvetur þá sem ekki komust að í þetta sinn til að reyna aftur síðar.
Mest lesið Þorgerður beygði af í Bítinu Innlent Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Erlent Nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Innlent Voru á Íslandi þegar maðurinn var drepinn Innlent Mættu í skólann og beittu nemanda ofbeldi Innlent „Verkinu er haldið í gíslingu“ Innlent Haraldur V Noregskonungur er látinn Erlent Uppsagnirnar hafi komið eins og reiðarslag Innlent Fleiri fréttir Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Símtöl almennt málefnaleg en dónaskapur inni á milli Aldrei komið í þvílíkt fjölmenni þar sem er svona mikil þögn Jákvæð „sjálfsmyndarkrísa“ í Brussel Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Líflátshótanir, þandar taugar og bein útsending frá norsku konungshöllinni Voru á Íslandi þegar maðurinn var drepinn Missti öxi sem hann hafði inni á sér og var handtekinn Uppsagnirnar hafi komið eins og reiðarslag Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Brynjar tekur við af Líf Jón Hrói nýr sveitarstjóri í Langanesbyggð Efast um að skylt verði að hefja aðildarviðræður þótt já verði ofan á Armslengd eigi sérstaklega vel við um Fjölmiðlanefnd Inga segir já Örfáir töldu Ingu hafa staðið sig best Tuttugu prósent búin að greiða atkvæði „Mér fannst ég þekkja hann strax og ég hitti hann í fyrsta sinn“ Bíða enn niðurstöðu varðandi vatnslögnina Brotist inn í Hygge á Barónsstíg Vélstjóra sem átti að sigla Bandero meinuð innganga Tuttugu prósent þegar greitt atkvæði og andlát Noregskonungs „Verkinu er haldið í gíslingu“ Reyndi að smygla fíkniefnum í vínflöskum Nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Þorgerður beygði af í Bítinu Segir Katrínu sparka í konuna sína Ungir vinstrimenn takast á um ESB: „Enginn að ráðast á fjallkonuna á nokkurn hátt“ Hnífjafnt á laugardag eða meiri munur en allir búast við? „Við sækjum ekki um aðild nema vegna þess að við viljum ganga inn“ Sjá meira