Ekkert hatur á Laugardalsvellinum á morgun Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 10. október 2013 22:30 Mynd/Daníel
Íslenska karlalandsliðið í fótbolta mætir á morgun Kýpur í undankeppni HM fyrir framan troðfullan Laugardalsvöll en það seldist upp á leikinn fyrir löngu. Íslenska liðið getur stigið skref í átt að því að komast á HM í Brasilíu með sigri. Verkefni gegn hatursorðræðu á Íslandi, sem meðal annars er beint gegn hatursáróðri og kynþáttafordómum, verður ýtt úr vör á landsleik Íslands gegn Kýpur á Laugardalsvellinum á morgun en þetta kemur fram á heimasíðu KSÍ. Hópur stofnana og samtaka á Íslandi stendur á bak við átakið og er það hluti af verkefni Evrópuráðsins sem ber heitið No Hate Speech Movement. Fyrir hönd Mennta- og menningarmálaráðuneytisins annast eftirtaldir aðilar útfærslu verkefnisins á Íslandi: SAFT, Heimili og skóli – Landssamtök foreldra, SAMFÉS, Landssamband æskulýðsfélaga og Æskulýðsvettvangurinn, í samstarfi við Mannréttindaskrifstofu Íslands. Verkefnið stendur fyrir jafnrétti, virðingu, mannréttindum og fjölbreytileika. Því er beint gegn hatursáróðri, kynþáttafordómum og mismunun á netinu. Markmiðin eru m.a. að stuðla að vitundarvakningu um hatursáróður og hatursorðræðu á netinu meðal ungs fólks, kynna þau fyrir mikilvægi miðlalæsis, styðja þau í að verja mannréttindi á netinu og utan þess og auka vitund gegn hatursáróðri á netinu. Fjölmargir viðburðir eru á dagskrá í vetur, en næsta föstudag, 11. október, munu m.a. ungmenni úr ungmennaráði SAFT mæta á Laugardalsvöllinn fyrir leik Íslands og Kýpur og dreifa efni sem ætlað er að vekja umræðu og vitund um hatursáróður. Auk ungmennanna munu fulltrúar þeirra samtaka sem standa að verkefninu dreifa efni og ræða málin.
Fótbolti Íslenski boltinn HM 2014 í Brasilíu Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn Grindavík - Njarðvík | Stórslagur á Suðurnesjunum Körfubolti Valur - Ármann | Halda Valsarar sigurgöngunni áfram? Körfubolti Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Enski boltinn Fleiri fréttir „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Sjá meira