Götusópur féll á hliðina og eyðilagðist Þórhildur Þorkelsdóttir skrifar 25. júlí 2013 15:40 Götusópurinn féll killiflatur á leið sinni yfir Gullinbrú.
Götusópur í eigu Hreinsitækni ehf. féll á hliðina á leið sinni yfir Gullinbrú um hádegisleytið í dag. Slík tæki kosta á bilinu 16- 24 milljónir. Lárus Jónsson, framkvæmdarstjóri Hreinsitækni segir líklegt að tækið sé gerónýtt. „Þetta eru lítil tæki sem eru með fulla tunnu af vatni og sandi. Þegar ökumaðurinn fer í gegnum beygjur þar sem malbik er lélegt hendist vatnið og þunginn á aðra hlið tunnunnar, og þá getur tækið auðveldlega oltið á hliðina.“ Lárus segir að malbik sé víða lélegt í borginni. „Ökumaður sópsins fór ofan í djúp hjólför í malbiki sem þarfnast viðhalds. Þetta eru mjó tæki og erfitt að eiga við þau í svona aðstæðum þó fólk reyni auðvitað eftir bestu getu að passa sig. Þetta var algjört óhapp.“ Ökumanni sópsins var ekki meint af veltunni og hélt áfram vinnu sinni á öðru tæki. Aðra sögu er hins vegar að segja af sópnum. „Ég reikna með að hann sé ónýtur, sem er auðvitað slæmt, þessi tæki eru nú ekki ókeypis,“ segir Lárus, og bætir því við að nýr götusópur af samskonar gerð kosti á bilinu 16 – 24 milljónir án vsk.
Mest lesið Sé ekki „stóri maðurinn“ sem lagði á ráðin um „að sjálfsmorða hann“ Innlent Hættu við ADHD-greiningu vegna vímuefnaneyslu barnsins Innlent Kristrún skýtur fimmtíu milljarðana niður Innlent Hækka verð hádegismatar eldri borgara um sjötíu prósent Innlent Færsla vínbúðarinnar „galin“ en skemmdi ekki miðbæinn Innlent Stolinn bíll fannst úti í á Innlent Tek mark á því að þetta sé fallegasta hús Íslands Innlent „Dýrslegt“ morð í grænlensku smáþorpi Erlent Hafi aldrei farið í Reykholt Innlent Allt gert til að stöðva birtinguna Innlent Fleiri fréttir Dómsmálaráðherra valdi Ásgerði í Hæstarétt Grunuðum þjófum vísað úr landi og meinuð endurkoma í 7 ár Áfram Ísland vísar fullyrðingum Kristrúnar á bug Heiðrún Lind á toppnum hjá hagsmunasamtökum Kvikuhlaup frá Svartsengi enn líklegasta sviðsmyndin Tíu af tuttugu efstu embættismönnunum hjá orkufyrirtæki Hafi aldrei farið í Reykholt Kristrún skýtur fimmtíu milljarðana niður Óttast að þeir tekjulægstu dragi úr kaupum á mat Verðhækkanir hjá Reykjavíkurborg og Kristrún á fundaferðalagi Sé ekki „stóri maðurinn“ sem lagði á ráðin um „að sjálfsmorða hann“ Hitnar í kolunum: Já og nei í Pallborði Stolinn bíll fannst úti í á Vilja bæta umferðarflæði með hraðari snjallljósavæðingu Hækka verð hádegismatar eldri borgara um sjötíu prósent Erlendir ríkisborgarar flestir í Mýrdalshrepp og fæstir í Kjósarhrepp Aðalmeðferðin heldur áfram í Reykholtsmálinu Meirihluti telur hitamet og gróðurelda vegna loftslagsbreytinga Bandero dregið úr höfn og flutt til Akraness Hættu við ADHD-greiningu vegna vímuefnaneyslu barnsins Færsla vínbúðarinnar „galin“ en skemmdi ekki miðbæinn Tek mark á því að þetta sé fallegasta hús Íslands Gott að Trump hafi opnað á umræðuna Fólk hélt í sér á meðan sólmyrkvinn gekk yfir Hljóðupptökur, ný vínbúð og færri sturtuðu niður yfir almyrkva Ekkert út á Dorriti að setja en frásögn eigenda ekki á rökum reist Allt gert til að stöðva birtinguna Skilti í setrinu á ensku: „Hjartanlega sammála því að við eigum ekki að hafa þetta svona“ Hjón skildu fimm ára dreng eftir í bíl: Málið á borði breskra yfirvalda Með stöðu sakbornings vegna banaslyss á Miklubraut Sjá meira