Samkeppni um lækna hefur aukist 9. febrúar 2013 07:00 Björn Zoëga
Læknaskortur er fyrirséður í landinu. Forstjóri Landspítalans segir reynt að bregðast við eftir megni. Hingað til lands hafa verið ráðnir læknar frá Asíu til að fylla stöður sem innlendir læknar fást ekki í. Vinir og fjölskylda toga lækna aftur heim. Reynt er eftir fremsta megni að bregðast við þeim vanda sem við blasir vegna þess hve erfitt reynist að ráða hingað til lands lækna sem eru við nám og störf í útlöndum, segir Björn Zoëga, forstjóri Landspítalans. „Við höfum lengi verið meðvituð um þennan vanda,“ segir Björn, en í nýlegri könnun meðal íslenskra lækna í útlöndum kom fram að mun færri ætluðu að flytja aftur heim en fær staðið undir endurnýjun í stéttinni. Raunar hafði rúmur helmingur ekki gert upp hug sinn um hvort eða hvenær hann flytti aftur heim og 16 prósent höfðu ákveðið að flytja ekki aftur heim. Meðal þeirra hluta sem íslenskir læknar í útlöndum settu fyrir sig varðandi flutning heim er aðstaðan á Landspítalanum. „En við höfum barist fyrir því í alllangan tíma að láta laga aðstöðuna okkar sem við vitum að er ekki í lagi,“ segir Björn. Yfir öðrum þáttum sem læknar setja fyrir sig, svo sem vinnutími og kjör, ráði spítalinn ekki yfir. „Við semjum um hvorugt, heldur er það gert í miðlægum samningum. En við reynum auðvitað að hafa þau áhrif sem við getum og vekjum athygli á því að hugsa þarf til frambúðar hvað þetta varðar.“ Þá bendir Björn á það sem fram kom í könnuninni að aðrir þættir en laun og aðstaða spili inn í, svo sem efnahagslegt umhverfi hér. „Nefndir voru hlutir á borð við lánakjör á húsnæði og ýmislegt annað. Þetta er náttúrlega langt nám sem fólk fer í og þótt það sé á einhverjum lúsarlaunum þarna úti á meðan það er að læra þá kemur það ekki ríkt heim heldur þarf eiginlega að byrja á því að byggja sig upp og það er það sem veldur þessu óvissuástandi.“ Þá segir Björn hluti sem ekkert hafi með kreppuna að gera hafa áhrif. Þannig hafi spítalinn tveimur til þremur árum fyrir hrun skilað fjármálaráðuneytinu upplýsingum um hvað ný vinnutímatilskipun Evrópusambandsins hefði í för með sér varðandi vinnu lækna, og þá sérstaklega unglækna. „Það er eins hjá okkur og annars staðar í Evrópu og jafnvel í Bandaríkjunum líka, þar sem vinnutími lækna hefur verið minnkaður, að einhver þarf að vinna vinnuna. Það þýðir að fjölga þarf læknum. Um þetta eru flestir meðvitaðir og er náttúrlega á langtímaáætlun hjá okkur.“ Þar sem læknaskortur hefur komið upp í Evrópulöndum hefur sums staðar verið farin sú leið að ráða lækna frá Indlandi og víðar að þar sem menntun lækna er góð en laun lægri. Björn segir dæmi um þetta hér á landi, svo sem á Akureyri þar sem starfandi séu læknar frá Indlandi. Hann segist þó ekki sjá fyrir sér aukna þróun í þessa átt hér á landi, að minnsta kosti ekki strax. „Þetta ræðst af því hvernig samfélagið þróast. Við rekum hér góða læknadeild við Háskólann og aðrar heilbrigðisstéttir eru vel menntaðar hér heima. Við þurfum bara að fá til baka fólkið sem fjárfest hefur verið í. En heimurinn hefur minnkað og samkeppni er að harðna um þessar alþjóðlegu stéttir sem geta starfað hvar sem er.“ olikr@frettabladid.is
Mest lesið „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Erlent Verðkröfur stjórnvalda hafi fælt lyfjaframleiðendur frá Innlent Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Erlent Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Innlent Óveður gengur yfir landið Innlent Umsátur opinberar skuggastríð málaliða Erlent Valhöll skrefi nær því að verða níutíu herbergja hótel Innlent Óvissustig vegna snjóflóðahættu í Súðavíkurhlíð Innlent Viðvaranir enn í gildi og vegir víða á óvissustigi Innlent Ráðist inn í skóla og veist að nemendum eða starfsfólki Innlent Fleiri fréttir Viðvaranir enn í gildi og vegir víða á óvissustigi Óvissustig vegna snjóflóðahættu í Súðavíkurhlíð Verðkröfur stjórnvalda hafi fælt lyfjaframleiðendur frá Valhöll skrefi nær því að verða níutíu herbergja hótel Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Skildu þýfið eftir á vettvangi í stolnum bíl Vandinn heimatilbúinn og vill sleppistæði Með gaddakúlu og sprautunálakylfu „Það væri mjög miður“ Litli spítalinn án samnings og ráðherra sér ekkert svigrúm Kallar 25 ára þak á verðtryggð lán sýndarmennsku Ráðist inn í skóla og veist að nemendum eða starfsfólki Óþolandi leyndarhyggja ríki um niðurstöður PISA-prófa Vill skýr viðbrögð við trassaskap í losunarmálum í lög Vilja hækka akstursgjald eldra fólks um allt að 163 prósent Aðeins talið sannað að Andri hafi beitt leigjandann ofbeldi Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni „Það andar ekki köldu á milli mín og neinna annarra“ Hreyfingin stærri en einstakar persónur Aftakaveður gengur yfir landið og búist við vegalokunum vegna ófærðar Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Inga vill áfram banna atvinnumannahnefaleika Vatnið finni sér leið í gegnum sprungur Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Tilkynnt um líkamsárás í miðbænum Óveður gengur yfir landið Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Sjá meira