Þór/KA vann auðveldan 5-0 útisigur á slökum FH-stúlkum í sextán liða úrslitum Borgunarbikarsins í dag.
FH-stúlkur sáu aldrei til sólar í leiknum en Arna Sif Ásgrímsdóttir kom gestunum yfir strax á fyrstu mínútu leiksins. Landsliðskonan Katrín Ásbjörnsdóttir bætti svo við tveimur mörkum í fyrri hálfleiknum og gestirnir því með þægilega forystu í hálfleik.
Það var svo Gígja Valgerður Harðardóttir sem skoraði fjórða mark gestanna áður en Lillý Rut Hlynsdóttir rak smiðshöggið á sigurinn. Auðveldur 5-0 sigur gestanna því í höfn og Þór/KA er því komið áfram í átta liða úrslit keppninnar.
Þór/KA áfram í átta liða úrslitin eftir stórsigur
