Innlent

Brotsjór kom á olíuflutningaskip í gærkvöldi

Mynd/Valgarður
Olíuflutningaskipið Laugarnes fékk á sig brotsjó þegar það var full lestað á siglingu norðvestur af Snæfellsnesi í gærkvöldi. Engan úr áhöfninni sakaði og skapaðist ekki hættuástand um borð, að sögn stjórnstöðvar Gæslunnar.

En brotsjórinn hreif út einn björgunarbát af skipinu og fór neyðarsendir hans í gang. Togarinn Ásbjörn var í grenndinni og fann áhöfn hans björgunarbátinn, tók hann um borð og slökkti á sendinum. Nú eru aðeins stór skip á sjó þar sem slæmt sjóveður er nánast umhverfis allt landið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×