Námsmenn fá ekki námsmannaafslátt á leikskólagjaldi Erla Björg Gunnarsdóttir skrifar 20. september 2013 12:49 Arnar Pétur og Aníka Eyrún hafa síðustu vikur barist fyrir að fá námsmannaafslátt á leikskólagjöldum sonar síns Aðsend mynd
Ungt par með barn fær ekki námsmannaafslátt á leikskólagjaldi hjá Leikskólum Reykjavíkur þrátt fyrir að vera bæði í fullu námi og á námslánum. Móðirin er í sjúkraliðanámi og faðirinn í kennaranámi Tónlistarskóla FÍH. Samkvæmt svari frá leikskólasviði til foreldranna er allt nám sem er lánshæft hjá Lín tekið gilt, en þau eru bæði í lánshæfu námi og á fullum námslánum. En svo segir einnig í svarinu að það þurfi að koma fram einingafjöldi á vottorði frá skóla. Námið hjá Tónlistarskóla FÍH er ekki bundið einingum en skólastjórinn hefur sent leikskólasviði vottorð þar sem hann staðfestir að faðirinn stundi fullt nám. Það dugði þó ekki til og fengu foreldrarnir höfnun á námsmannaafslætti í bréfi frá leikskólasviði í gær en þar stóð að það vantaði að geta fjölda eininga sem faðirinn tekur í Tónlistarskóla FÍH. „Þarna er verið að einblína á smáatriði. Það eru gerðar sömu kröfur til að fá námslán hjá LÍN og að fá afslátt hjá leikskólasviði. Þannig að ef ég uppfylli kröfur LÍN þá hlýt ég að uppfylla kröfur leikskólasviðs. Þetta er bara smámunasemi, og ég mun fara með þetta lengra,“ segir Arnar Pétur Stefánsson, faðir og nemandi Tónlistarskóla FÍH. Þegar Vísir hafði samband við leikskólasvið Reykjavíkurborgar var bent á bréfið sem foreldrunum var sent, þar sem þau fá höfnun vegna vöntun á upplýsingum um einingafjölda. Foreldrarnir þurfa því að borga 30 þúsund krónur, sem er fullt gjald, í stað 14 þúsund króna námsmannagjalds fyrir þriggja ára son sinn. „Við ætlum ekki að borga leikskólagjaldið fyrr en þetta mál er búið. Við gefumst ekkert upp, það er hreinlega verið að mismuna skólum í þessu máli,“ segir Aníka Eyrún Sigurðardóttir, móðir og sjúkraliðanemi.
Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Fleiri fréttir „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Sjá meira