Teljum eðlilegt að fá að skrá niður verð Ingibjörg Bára Sveinsdóttir skrifar 8. febrúar 2013 06:00 ASÍ vill gott samstarf við verslanir um verðkannanir. Fréttablaðið/anton „
Það er eðlilegt að það komi upp afmarkaðir þættir við verðkannanir sem menn eru ekki sammála um. Við fáum ábendingar öðru hverju frá verslunum en langoftast ekki. Við metum þær á gagnrýninn hátt en eðlilega hafa þeir kannski aðra sýn á þetta en við.“ Þetta segir Henný Hinz, hagfræðingur hjá ASÍ, um þá gagnrýni fulltrúa nokkurra verslana að ASÍ sinni ekki athugasemdum við niðurstöður verðkannana. Verðtökufólki frá ASÍ var í síðustu viku vísað frá verslunum Hagkaups, Kosts, Nóatúns og Víðis. Henný segir samkomulag um verðkannanir hafa verið við Samtök verslunar og þjónustu, SVÞ, í mörg ár. „SVÞ sagði sig hins vegar frá þessu fyrir nokkrum árum. Samkomulagið fólst í ákveðnu verklagi. Þá komum við óundirbúið eins og núna. Við settum síðan okkar eigin verklagsreglur. Eini munurinn er sá að við gefum okkur ekki fram við fulltrúa verslunarinnar þegar við erum komin á staðinn. Við erum bara viðskiptavinir sem ganga inn en erum með blöð og penna.“ Að sögn Hennýjar notar ASÍ eingöngu upplýsingar sem eru sýnilegar. „Fólk verslar eftir því sem það sér í versluninni. Það er þar sem það tekur ákvörðunina.“ Hún segir annmarka á því að kaupa vörur þegar gerð er verðkönnun. „Þetta er mjög kostnaðarsamt og villuhættan er eiginlega meiri. Við teljum að viðskiptavinurinn versli ekki á kassanum, heldur inni í búðinni. Við viljum geta sinnt þessu eftirliti án þess að vera í einhverjum leikjum og beita brögðum. Við teljum að við eigum að geta gert þetta í góðu samstarfi við verslanir, eins og það er reyndar í langflestum tilvikum.“
Mest lesið „Skiljum mjög vel að þetta sé erfitt fyrir íbúana í hverfinu“ Innlent Hinn grunaði í sverðaárásinni í Fagersta í Svíþjóð nafngreindur Erlent Vilja að aldursviðmið um börn í vopnalögum verði uppfærð Innlent Fimm hundruð milljóna króna viðhald á dagskrá Innlent Heilsu Haralds konungs hrakar Erlent Gagnrýnir viðbragð lögreglu eftir áhlaup ungmenna Innlent Tvö útköll á svipuðum slóðum á hálendinu með stuttu millibili Innlent Hótar að flytja aftur til Færeyja gangi Ísland í ESB Innlent Tilkynnt um heimilisofbeldi í Reykjavík og Hafnarfirði Innlent Ráðherra byrjar með hlaðvarp Innlent Fleiri fréttir „Skiljum mjög vel að þetta sé erfitt fyrir íbúana í hverfinu“ Fimm hundruð milljóna króna viðhald á dagskrá Vilja að aldursviðmið um börn í vopnalögum verði uppfærð Malbika Vesturlandsveg og stýra umferð á meðan Tvö útköll á svipuðum slóðum á hálendinu með stuttu millibili Tilkynnt um heimilisofbeldi í Reykjavík og Hafnarfirði Vaxtaákvörðunin hafi ekki verið rædd Gagnrýnir viðbragð lögreglu eftir áhlaup ungmenna Ráðherra byrjar með hlaðvarp Höfðu afskipti af á fjórða tug unglinga vegna drykkju „Ætlar hann að segja já eða nei?“ Hótar að flytja aftur til Færeyja gangi Ísland í ESB Hvað gerist á fasteignamarkaði ef við göngum í ESB? Nei eða já frá ólíkum sjónarhornum á Sprengisandi Þrír handteknir eftir árás þar sem eggvopnum og hnúajárni var beitt Mikil ungmennadrykkja á Menningarnótt og tveimur skemmtistöðum lokað Hiti á fundi borgarráðs vegna breytinga á matarþjónustu Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Sakamálið sem skekur Bandaríkin Allt gengið vel og „ekkert að fara að klikka“ Bíllinn fannst skammt frá en þjófarnir eru ófundnir Handalögmál milli öryggisvarðar og þjófs Límmiðar lifðu ekki af nóttina Segir augljóst að lögum hafi ekki verið framfylgt við kyrrsetninguna Segja Morgunblaðið leggja þeim orð í munn Björguðu veikum göngumanni í kílómetrahæð á Fimmvörðuhálsi Skipunartíminn lengdur án auglýsingar Engin þjónusta: „Staðan er náttúrulega grafalvarleg á þessu svæði“ Bændur órólegir vegna skorts á dýralæknum Aftur í skólastjórastólinn Sjá meira