Fengu 500 þúsund króna sekt fyrir smygl Boði Logason skrifar 31. júlí 2013 10:15 Um var að ræða nær áttatíu lítra af áfengi og 6.800 vindlinga. Mynd/Tollstjóri
Tollverðir haldlögðu fyrr í mánuðinum talsvert magn af smyglvarningi, sem átta skipverjar á flutningaskipinu Arnarfelli gengust við að eiga. Um var að ræða nær áttatíu lítra af áfengi og 6.800 vindlinga. Varningurinn, sem ekki hafði verið framvísað við tollafgreiðslu, var ýmist falinn í skipinu eða utan þess þar sem það lá í höfn við Holtagarða. Þennan umrædda dag stöðvuðu tollverðir þrjár bifreiðar skipverja sem ekið var frá skipshlið og fannst smyglvarningur, bæði áfengi og vindlingar, í þeim öllum. Í ruslagámi við hlið skipsins fundu tollverðir einnig smyglvarning sem tveir skipverja gengust við að eiga. Í klefa í skipinu, sem í var geymdur björgunarbúnaður, fundust þrjár stórar töskur faldar bak við búnaðinn. Þær höfðu einnig að geyma áfengi og vindlinga. Auk alls þessa framvísuðu tveir skipverjar til viðbótar smyglvarningi sem þeir höfðu falið í skipinu. Sjö af skipverjunum átta sem hlut áttu að máli gengu frá sektargerð á staðnum. Magn varnings í fórum hins áttunda var hins vegar það mikið að sektarfjárhæð var yfir þeim mörkum sem leyfilegt er að ganga frá á vettvangi. Var því máli því vísað áfram til rannsóknardeildar Tollstjóra. Í aðgerðinni voru innheimtar sektir samtals að fjárhæð tæplega fimm hundruð þúsund krónur. Málið telst upplýst og veitir Tollstjóri því ekki frekari upplýsingar um það.
Mest lesið Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Erlent Segir í tísku að setja „alþjóðasamfélagið“ ofar eigin þjóð Erlent Fleiri fréttir Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sjá meira