Héraðsskólinn á Laugarvatni fær nýtt hlutverk Hrund Þórsdóttir skrifar 31. júlí 2013 19:00
Héraðsskólahúsið á Laugarvatni er merkilegt fyrir margar sakir. Arkitektinn Guðjón Samúelsson teiknaði það, þar skrifaði Halldór Laxness bókina Sjálfstætt fólk og þar var líka stjórnarsáttmálinn undirritaður í vor. Tveir félagar hafa tekið húsið á leigu af ríkinu næstu árin og opna á morgun hostel, veitingastað með léttum veitingum og upplýsingamiðstöð fyrir ferðaþjónustu. „Það sem við sjáum fyrir okkur er að við getum eflt allt svæðið, fengið alla með okkur, selt vörur hérna úr sveitinni og hjálpað ferðamönnum að fá upplýsingar um þjónustu sem er á svæðinu,“ segir Sveinn Pálsson, annar tvímenninganna. Markmiðið er að leyfa sögu hússins að njóta sín en farið var í umtalsverðar framkvæmdir og enn er töluvert eftir. Til að byrja með verða 72 rúm í boði en þeim fjölgar í um 120 næsta sumar. Húsið er næstum 1600 fermetrar og segja þeir félagar vini og vandamenn ásamt heimamönnum á svæðinu hafa reynst afar hjálplega. Kvistur hússins og ytra útlit er friðað en arkitektafyrirtækið Marey sá um hönnunarvinnu í kringum breytingarnar. Þá kom ráðgjafafyrirtækið Iceland REPS að undirbúningnum. Þeir félagar fjármagna verkefnið sjálfir. „Við fórum í sparibaukana okkar og hristum þá allrækilega,“ segir Sverrir Steinn Sverrisson. Stefnt er að heilsársrekstri og margs konar uppákomur eru í bígerð, t.d. brúðkaup og hjólreiðamót. Upplýsingaþjónusta fyrir ferðamenn mun byggja á hugbúnaðarkerfi sem þeir félagar hafa þróað í samstarfi við Bókun ehf. og verður netsíðan icelandonsale.com opnuð fljótlega. „Þetta er í raun svona alhliða bókunarþjónusta fyrir afþreyingu, gistingu, bílaleigu og veitingastaði,“ segir Sverrir. Hann hefur viss tengsl við þetta sögufræga hús. „Skólinn var stofnaður 1928 og afi minn heitinn Ólafur Þorláksson var hérna 1929 til 1931 ef ég man rétt, náði sér í ömmu hérna, Helgu Eysteinsdóttur. Bróðir hans var hérna reyndar líka sem náði sér í systur hennar ömmu, byggðu sér bæ hlið við hlið við Hraun í Ölfusi og lifðu sæl og hamingjusöm.“
Mest lesið Telur aðgerðarsinna hér heima vinna með Watson Innlent „Ætlum að sækja að olíufélaginu sem heldur þessari slátrun gangandi“ Innlent Ýtukarl á áttræðisaldri er enn að bæta vegina Innlent Vigdís kíkti í kaffi til Kristrúnar Innlent „Farðu nú að hætta þessu þvaðri viðrinið þitt“ Innlent Reiðin magnast í Venesúela Erlent Hæstiréttur Bandaríkjanna hafnar áfrýjunarbeiðni Trumps Fréttir Lokar fyrir aðgengi að Reykjafossi og Fossalaug Innlent Gagnrýnir að skipinu hafi ekki verið vísað frá Innlent Segir ekki tilefni til að endurskoða lyfjaakstursmál síðustu ára Innlent Fleiri fréttir „Ætlum að sækja að olíufélaginu sem heldur þessari slátrun gangandi“ Öryggisbrestur hjá héraðssaksóknara til Persónuverndar Lýsa yfir þungum áhyggjum af notkun gervigreindar við tónlistarsköpun Ýtukarl á áttræðisaldri er enn að bæta vegina Með kylfur og mikið magn vímuefna Telur aðgerðarsinna hér heima vinna með Watson Segir ekki tilefni til að endurskoða lyfjaakstursmál síðustu ára Vigdís kíkti í kaffi til Kristrúnar Varamaður á Ísafirði verður sveitarstjóri Súðavíkur Orðinn Háskóli Íslands á Hólum Gagnrýnir að skipinu hafi ekki verið vísað frá Svavar Pálsson ráðinn sveitarstjóri Húnabyggðar „Ekkert sérstaklega ánægð“ þegar hún sá hnífinn Margrét Kristín skipuð lögreglustjóri á Suðurnesjum „Við verðum bara að horfast í augu við smæð okkar“ Lokar fyrir aðgengi að Reykjafossi og Fossalaug Gagnrýnir Landhelgisgæsluna vegna Bandero og ýtukarl á áttræðisaldri „Allir eru reiðubúnir að hætta á handtöku“ Fósturfaðirinn áfram í gæslu Leiðrétta rangar kröfur um kílómetragjald af seldum bílum „Hlægilegt þvaður gegn lýðræði!“ Handtekinn í Reykholti vegna kannabisræktunar Bað um íslensku á Hard Rock en kvöldið endaði hjá lögreglu Fær ekki áheyrn í Hæstarétti eftir að hann kallaði konu „svertingjatussu“ Þorgerður varar ESB við nýjum aðildarskilmálum Rigningu spáð í Reykjavík alla vikuna og fólk á leið austur „Ræddum að þetta gæti verið kveðjugjöf“ Erfiðar aðstæður þegar göngumaður slasaðist á leið í Hrafntinnusker Reglugerðin rétt ókomin: „Auðvitað er þetta áfellisdómur yfir réttarframkvæmd á Íslandi“ Þór með Bandero í gæslu á hvalamiðum Sjá meira