Landspítalinn kominn í þrot Heimir Már Pétursson skrifar 6. september 2013 15:03
Læknar á Landsspítalanum segja spítalann kominn í þrot og grípa þurfi til aðgerða nú þegar til að styrkja starfsemi hans. Skipulag spítalans bitni á sjúklingum og starfsfólki. Læknar komu saman til fundar fjölmenns fundar í húsakynnum læknafélaganna í Kópavogi í gærkvöldi. Friðbjörn Sigurðsson lyflæknir á Landsspítalanum segist ekki muna eftir svo fjölmennum fundi hjá læknum sem ekki fjallaði um kjaramál, enda sé þungt í læknum. „Eins og kemur fram í ályktuninni sem samþykkt var á fundinum í gær, þá teljum við að Landsspítalinn sé kominn í þrot. Og við teljum ákaflega mikilvægt að stjórnvöld og stjórnendur sjúkrahússins átti sig á að svo sé og viðurkenni þennan vanda því það er grundvöllur þess að við getum farið að byggja upp að nýju.,“ segir Friðbjörn. Friðbjörn segir vandann ekki eingöngu efnahagskreppuni að kenna, hann sé miklu víðtækari. „Eitt málið eru t.d. húsnæðismál sjúkrahússins. Þegar sjúkrahúsin voru sameinuð fyrir meira en áratug síðan var það forsenda sameiningarinnar að starfsemin yrði flutt í eitt hús,“ segir Friðbjörn. Starfsfólk sjúkrahússins hafi verið að bíða eftir nýjum spítala í öll þessi ár og öll skipulagsmál og þróun starfsemi sjúkrahússins hafi verið stopp á meðan og vandamálin hrannast upp. „Margir hérna innanhúss eru orðnir vonlitlir um að það verði til nýr spítali á næstunni og að það verði núna að gera kostnaðarsamar breytingar . Það verði að flytja bráðastarfsemi sjúkrahússins á einn stað,“ segir Friðbjörn. Lyflækningar hafi t.d. farið sérstaklega illa út úr því að vera staðsett í mörgum húsum en hún sé nú á Landakoti, í Fossvogi og á Hringbraut. Þetta hefti alla samvinu lyflækna og samvinnu við aðrar heilbrigðisstéttir.Bitnar það á sjúklingunum?„Vissulega, því það er verið að þeyta sjúklingum fram og til baka, sem gerir alla þjónustu við þá miklu, miklu lakari,“ segir Friðbbjörn Sigurðsson lyflæknir.
Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Fleiri fréttir „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Sjá meira