Íslendingur sá um tæknibrellur í Gravity Hanna Rún Sverrisdóttir skrifar 6. september 2013 21:01 Daði Einarsson stýrði hópi fólks sem vann að forvinnslu myndarinnar Gravity.
Daði Einarsson stýrði hópi fólks sem vann að forvinnslu myndarinnar Gravity. Daði segir að myndin sé nánast öll teiknuð og það hafi farið fram mikil brellu (e. effect) vinnsla við gerð myndarinnar. Í raun sé lítið um alvöru hluti í myndinni, það sé helst andlitin á leikurunum sem standi eftir hvað það varðar. Hann sá meðal annars um hönnun og framkvæmd á öllum hreyfingum í myndinni. Hann segir að það sé mikil tövlugrafík notuð til þess að ná þyngdarleysinu og því sem á að gerast í geimnum. Nánast öll myndin er teiknuð í þrívídd. Daði segir að myndin hafi í raun öll verið gerð á tölvu áður en hún fór í tökur. Allar staðsetningar leikaranna séu reiknaðar út fyrirfram með hreyfingum sem teiknaðar eru í tölvu. Meðal annars útbjuggu þau vélmenni sem er forritað af hreyfingunum sem teiknaðar eru í tölvunni og vélmennið sýrir myndavélinni sem tekur upp. „Ég var í hálft ár með leikstjóranum Alfonso Cuarón að búa bíómyndina til. Við gerðum allar senurnar og gerðum myndina í raun alveg tilbúna, nema bara í lægri gæðum. Þannig fær leikstjórinn sína sýn á myndina. Við horfðum saman á myndina og leikararnir horfðu líka á hana áður en tökur hófust,“ segir Daði.Vísir fjallaði um myndina í gær. Daði segir að umhverfið á tökustaðnum sé mjög hrátt. Það er þá undir leikstjóranum komið að vinna með leikurunum og fá það sem hann vill út úr þeim í samræmi við tölvuvinnsluna. Leikararnir þurfa að ímynda sér mjög mikið, það er ekkert í umhverfinu á tökusataðnum sem sýnir hvernig myndin mun koma til með að líta út að lokum.„Gaman að fá tækifæri til að vinna með Alfonso Cuarón“ „Ég var að vinna í myndinni árið 2010, þegar ég hætti að vinna í henni var um ár eftir af framleiðslunni,“ segir Daði. „Þetta var rosalega mikil vinna en það var gaman að vinna með Alfonso Cuarón, hann er rosalega flottur leikstjóri og skemmtilegur karakter. Það var virkilega gaman að fá tækifæri til að vinna svona náið með honum og vera með í að búa til myndina frá upphafi til enda, í grófri mynd,“ segir hann. Daði vann Emmy verðlaunin árið 2002. Verðlaunin vann hann fyrir myndbrellur í myndinni Dino Topia, sem var á þeim tíma umfangsmesta sjónvarpsefni sem HBO hafði framleitt. Daði hefur einnig unnið með Baltasar Kormáki að myndunum 2 Guns, Contraband og Djúpinu og reka þeir nú saman fyrirtækið RVX á Íslandi.
Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Fleiri fréttir Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Sjá meira