Nýr lifandi fræðsluvefur Regnbogabarna í loftið Heimir Már Pétursson skrifar 6. september 2013 17:11 „Við erum nú þegar með langan lista af fyrirlesurum og fræðingum sem bíða þess að komast upp á svið og flytja sína fyrirlestra," segir Stefán Karl. Mynd/Daníel
Regnbogabörn opnuðu í dag forvarna-og fræðsluvefinn Fyrirlestrar.is, verkefni sem byggir á starfi samtakanna frá stofnun árið 2002. Markmið Regnbogabarna hafa alltaf verið að veita upplýsingar, fræðslu og að hvetja til umræðu í samfélaginu í því augnamiði að byggja upplýstara samfélag. Stefán Karl Stefánsson formaður Regnbogabarna segir að nú þegar séu yfir 40 fyrirlestrar af ólíku tagi á vefnum sem allir eigi það sameiginlegt að fjalla um samfélagsmál sem snerti alla. „Þessi vefur mun t.d. koma að gagni við kennslu, fyrst og fremst til að bæta skólamenninguna. Það sem ég á við með því er að vefurinn mun nýtast vel til að fræða foreldra, nemendur og alla þá sem koma að skólasamfélaginu um margbreytileika mannlífsins,“ segir Stefán Karl. Fræðslan einskorðist ekki við eineltismál heldur sé þar að finna fræðslu um jafn ólíka málaflokka og jafnrétti kynjanna, uppeldi, ofbeldi á heimilum, Asberger, ADHD, áföll og streitu og geðrækt svo eitthvað sé nefnt. Stefnt sé að því að fyrirlestrarnir, sem allir eru lifandi og teknir upp af Saga Film, verði orðnir 300 árið 2016 og það sé enginn skortur á fyrirlesurum. „Við erum nú þegar með langan lista af fyrirlesurum og fræðingum sem bíða þess að komast upp á svið og flytja sína fyrirlestra og við erum að undirbúa að fara jafnvel strax núna í október að fara í upptökur á fimmtán nýjum fyrirlestrum. En á næsta ári er áætlað að við tökum upp sextíu fyrirlestra til viðbótar,“ segir Stefán Karl. Unnið sé að því að texta alla fyrirlestrana þannig að þeir verði aðgengilegir fólki sem talar ekki íslensku og opni um leið glugga út í heim fyrir þá fræðimenn sem flytji fyrirlestrana í sjálfboðavinnu. Vefurinn verður rekinn með styrkjum og frjálsum framlögum og sjá Regnbogabörn um alla framkvæmd og utanumhald.
Mest lesið Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Innlent Flugstjórinn þögull sem gröfin Innlent Gera ekki aðra atlögu Innlent „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi Innlent Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Innlent Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Trump hjólar í páfa Erlent Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Innlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Fleiri fréttir Fékk uppsagnarbréf og hótar málsókn Miðflokkurinn úr leik í Árborg Krefja Ingu svara við leikskólaáformum Samfylkingarinnar „Við lítum þetta mál mjög alvarlegum augum“ Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi „Þetta er erfiður mánudagur“ Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Drengurinn kominn heim til sín Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Gera ekki aðra atlögu Lækka leikskólagjöld til að bregðast við verðbólgu Sjá ekki fyrir endann á ástandinu í fangelsunum Flugstjórinn þögull sem gröfin Lækka gjöld í sveitarfélaginu og fangaverðir segja kerfið komið að þolmörkum Erfiðara að berjast við stjórnvöld en að lifa með náttúruvá „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Lágflugið vekur athygli erlendis Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Vonar að skólastarf verði í bænum þrátt fyrir tilmælin Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ „Deilum við Norðmenn um meira en síld og makríl“ Hraða verði endurskoðun á endurgreiðslukerfinu Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Vonbrigði með tilmæli og bjórbann í Bláfjöllum Látinn laus ef hann segði til nafns en neitaði Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Sjá meira