Taka ekki við fleiri leikskólabörnum Eva Bjarnadóttir skrifar 11. desember 2013 12:00
Um fimmtíu börn á leikskólaaldri munu bætast við á biðlista Reykjavíkurborgar eftir frumgreiningu á þroskavanda. Þroska- og hegðunarstöð Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins hefur tilkynnt Reykjavíkurborg að stöðin sé hætt að taka við umsóknum um frumgreiningu vegna leikskólabarna. Ástæðan er sögð vera löng bið eftir greiningu og að sambærilega þjónustu megi sækja hjá borginni. Þroska- og hegðunarstöð hefur tekið við tilvísunum frá ung- og smábarnaeftirliti Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, en frá og með áramótum verður leikskólabörnum beint til borgarinnar. Hjá Þroska- og hegðunarstöð fengust þær upplýsingar að um fimmtíu tilvísanir berist árlega vegna reykvískra leikskólabarna. Hákon Sigurgeirsson, deildarstjóri sérfræðiþjónustu skóla í Breiðholti, segir alls staðar vera biðlista og stafi það af fjárskorti. „Reglugerðin um flutning þjónustunnar yfir til sveitarfélaga var kostnaðarmetin á sínum tíma og gerði ráð fyrir að hækka þyrfti framlög um 33 prósent. Það hefur ekki gerst,“ segir hann. Í Breiðholti eru nú 110 leikskólabörn á biðlista eftir frumgreiningu.Heiður Rán KristinsdóttirHeiður Rán Kristinsdóttir sótti um frumgreiningu fyrir þriggja ára gamlan son sinn fyrir rúmum mánuði hjá sérfræðiþjónustu skóla í Laugardal. Henni var þá tjáð að biðin eftir sálfræðimati yrði að minnsta kosti eitt ár og að biðlistinn lengdist sífellt. Heiður segir mikilvægast fyrir sig að fá leiðbeiningar um hvernig taka skuli á málum, og tryggja að samfella sé á milli þess sem er gert í leikskólanum og heima. Á meðan mæðginin bíða verða haldnir reglulegir fundir með sérkennslufulltrúa og staða mála tekin. Þá er lögð rík áhersla á náið samstarf milli leikskóla og foreldra. „Hann er mjög virkur og hress svo ég vil athuga hvort hann sé með ofvirkni,“ segir Heiður. „Það eru allir sammála um að hann sé alveg á mörkunum, og ég myndi bíða lengur með að athuga þetta ef ekki væri svona löng bið eftir aðstoð,“ segir Heiður. Brýnt að sinna börnunum sem fyrst Velferðarráð bókaði mótmæli við ákvörðun Þroska- og hegðunarstöðvar á síðasta fundi sínum. Þar kemur fram að ákvörðun Þroska- og hegðunarstöðvar sé eitt margra dæma um að ríkið færi þjónustu yfir til sveitarfélaga án samráðs eða samninga um greiðslur til að mæta auknum skyldum. Í bókuninni segir meðal annars: „Við gætum að sama skapi sagt að biðlistar eftir sérfræðiþjónustu hafi lengst hjá okkur, þess vegna hættum við þjónustunni og vísum henni yfir á ríkið. Okkur hefur ekki enn dottið það í hug,“ Formaður velferðarráðs, Björk Vilhelmsdóttir, segir Reykjavíkurborg gjarnan vilja sinna börnunum en þegar verkefnið var fært til sveitarfélaga árið 2010 hafi fjármagn ekki fylgt með. Þá segir hún afar brýnt að sinna börnunum sem fyrst, því þannig náist bestur árangur „Það er félagsleg fjárfesting að veita þessum börnum stuðning. Það skiptir öllu máli fyrir þroska þeirra að snemma sé gripið inn í,“ segir Björk. Greining hjá sérfræðiþjónustu skóla er gjaldfrjáls, en foreldrum stendur sambærileg þjónusta til boða hjá sjálfstætt starfandi sérfræðingum, „Hver greining kostar tugi þúsunda. Flestar fjölskyldurnar eru meðaltekjufjölskyldur og það kemur ekki til greina að velta þessum kostnaði yfir á þær,“ segir Björk.
Mest lesið „Það var alveg skýrt að það ætti bara að drepa þetta mót hjá okkur“ Innlent Fjölskyldan í sárum og biður foreldra um að fylgjast með netnotkun barna Innlent Leidd út í járnum eftir lögregluaðgerð í Skipholti Innlent Starmer segir af sér Erlent Lögreglan lýsir eftir Ernu Athichu Innlent Ökumaður vespunnar reyndist vera með allt niður um sig Innlent Ferðalangar utan EES ekki tryggðir vegna veikinda eða slysa Innlent Hrafni bjargað af þaki Byko Innlent Skartgripaþjófur sigldi undir fölsku flaggi í íbúðum aldraðra Innlent Telur að það eigi að gera bíla upptæka vegna utanvegaaksturs Innlent Fleiri fréttir Helmingur óánægður hefði Hildur valið Miðflokkinn Ökumaður vespunnar reyndist vera með allt niður um sig 86 prósent horfðu ekki á úrslit Eurovision Ráðherra vill varamótor Herjólfs tiltækan hérlendis Pólitískur ólgusjór í Bretlandi, hvalveiðar og banvæn hitabylgja „Best að taka menn og sekta duglega“ Briddsarar í toppformi leggjast í víking til Ríga Lögreglan lýsir eftir Ernu Athichu Segir ákall frá samfélaginu að gera eins fyrir stelpur og stráka Slagsmál tveggja í Kópavogi enduðu á slysadeild Árásin á Höfðatorgi: Þrír ákærðir fyrir tilraun til manndráps Aldrei fleiri fengið úthlutaða skólavist Kom ekki til skoðunar að gera Land Rover-jeppana upptæka BSO-stöðin komin á nýtt heimili Hrafni bjargað af þaki Byko Hlutu Vigdísarverðlaunin fyrir baráttu fyrir jöfnu aðgengi að þungunarrofi Skartgripaþjófur sigldi undir fölsku flaggi í íbúðum aldraðra „Það var alveg skýrt að það ætti bara að drepa þetta mót hjá okkur“ Segir þörf á fræðslu um kyrkingartak í grunnskólum Ferðalangar utan EES ekki tryggðir vegna veikinda eða slysa Fyrstu hvalirnir skotnir og Starmer segir af sér Fyrstu hvalirnir skotnir í nótt Reiðhjólauppboð lögreglu hefst í dag Fundu kannabisplöntur í húsi á Suðurnesjum Ekki lengur flestir sem útskrifast af náttúrufæðibraut Telur að það eigi að gera bíla upptæka vegna utanvegaaksturs Loka Sæbraut til austurs við Hörpu í kvöld Jarðskjálfti að stærð 3,1 í nótt Fjölskyldan í sárum og biður foreldra um að fylgjast með netnotkun barna Einn kærður fyrir stórfellda líkamsárás Sjá meira