Mat lagt á hættulega staði á ferðaslóðum Páll Guðmundsson skrifar 1. júní 2013 07:00 Páll Guðmundsson
Ferðafélag Íslands hefur í samstarfi við VÍS gert áhættumat á vinsælum gönguleiðum á landinu. Nú þegar hefur verið birt áhættumat á leiðum á Esjunni á vef félagsins, fi.is, sem hægt er að skoða án endurgjalds. „Við erum til dæmis búnir að taka Esjuna fyrir eins og hún leggur sig, alls tólf leiðir. Við höfum gengið þessar leiðir skref fyrir skref eftir kortum og myndum og metið hvað getur komið fyrir á hverjum stað,“ segir Páll Guðmundsson, framkvæmdastjóri Ferðafélags Íslands. Einnig er hægt að skoða áhættumat á Hornströndum, Laugaveginum, Fimmvörðuhálsi, Hvannadalshnjúk og Lónsöræfum. Á næstu tveimur árum verður gert áhættumat á öðrum helstu gönguleiðum á landinu, að því er Páll greinir frá. Hann segir Ferðafélagið hafa viljað sýna þetta frumkvæði til að auka öryggi og tryggja för ferðamanna. „Þetta er jafnframt liður í að taka upp Vakann, sem er umhverfis- og gæðastjórnunarkerfi frá Ferðamálastofu.“ Páll getur þess að einnig hafi verið gert heildarmat á áhættunni við það að ferðast úti í náttúrunni. „Við bendum á leiðir til að draga úr hættu á að hrasa, villast, týnast, ofkælast eða lenda í vandræðum í vöðum og ám. Það er til dæmis hægt með því að huga að góðum búnaði, vera í góðum skóm og fatnaði, vera í fylgd með öðrum og láta vita af ferðum sínum. Besta reglan er að snúa frá eða hætta við ef maður er óöruggur um einhver atriði.“ ibs@frettabladid.is
Mest lesið Flugvél lenti í hvolfi í Mosfellsbæ Innlent Áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang: „Stend þarna bara náföl og hágrátandi“ Innlent Rifjaði upp hvernig það var að vera ung stelpa með leyndarmál vegna ummæla Snorra Innlent Grunaður í tengslum við eld á heimili eiginkonu sinnar Innlent Íslandi lýst sem „nútíma fámennisveldi“ uppfullu af spillingu Innlent Frambjóðendur Miðflokksins keppast um að fagna fjölbreytileikanum Innlent „Hvað eruð þið að biðja mig um og hvers vegna? Hvar ætti ég að hafa dvalið?“ Innlent „Þessi uppsögn snerist um eitthvað miklu stærra heldur en einn mann“ Innlent Trump segir Írani krúttlega og þeir geti ekki kúgað Bandaríkin Erlent Prestur afþakkar „ömurlegan málflutning“ Miðflokksins Innlent Fleiri fréttir Flugvél lenti í hvolfi í Mosfellsbæ Grunaður í tengslum við eld á heimili eiginkonu sinnar Rifjaði upp hvernig það var að vera ung stelpa með leyndarmál vegna ummæla Snorra Sinueldur við Vík í Mýrdal Frambjóðendur Miðflokksins keppast um að fagna fjölbreytileikanum „Það hafa ekki verið neinir hnökrar hjá okkur“ „Þessi uppsögn snerist um eitthvað miklu stærra heldur en einn mann“ Áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang: „Stend þarna bara náföl og hágrátandi“ Sama kona áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang Kölluð út á hæsta forgangi vegna sundmanns í Þingvallavatni Íslandi lýst sem „nútíma fámennisveldi“ uppfullu af spillingu Handtekinn grunaður um að hafa ráðist á leigubílstjóra „Hvað eruð þið að biðja mig um og hvers vegna? Hvar ætti ég að hafa dvalið?“ Leiðir saman týnda hluti og eigendur þeirra Hefur áhrif að vera háður umönnunaraðilum „Ég var gjörsamlega svo hissa að ég vissi ekki hvert ég ætlaði“ Meirihlutinn fallinn samkvæmt nýrri könnun „Aðild að Evrópusambandinu myndi skapa stöðugleika“ Olíuverð, starfslok og vinsældir hristibretta Miðflokkurinn á Hornafirði segir ásakanirnar fjarri sanni Prestur afþakkar „ömurlegan málflutning“ Miðflokksins Púlsinn tekur til starfa gegn ofbeldi meðal barna Gripin í tollinum með þrjátíu kíló af amfetamíni Átta vilja tvö laus sæti í Landsrétti Katrín og Sturgeon hlutu Velsældarverðlaun Yfirborð golfvallarins eins og búðingur Sögufrægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru Kynna stafrænt Reykjavíkurkort Takmarkaður áhugi Petoro á Drekasvæðinu Mörg dæmi um að tekið sé sérstakt tillit til umsóknarríkja Sjá meira