Um 30 þúsund lán Landsbankans í endurútreikning 1. júní 2013 07:00 Hér má sjá steininn sem velti hlassinu, en þetta er bíllinn sem Plastiðjan höfðaði málið út af. Mynd/Stöð2 „
Fyrst og fremst er það ánægjan yfir því að dómurinn hafi komist að sömu niðurstöðu og við þegar við fengum endurútreikninginn frá SP-fjármögnun. Við erum vissulega glaðir yfir því að þetta geti haft jákvæð áhrif á samfélagið allt,“ segir Axel Óli Ægisson, framkvæmdastjóri Plastiðjunnar. Fyrirtækið hafði betur gegn SP-fjármögnun, sem nú er hluti af Landsbankanum, í Hæstarétti í gær. Deilt var um uppgjör lánasamnings Plastiðjunnar og SP-fjármögnunar vegna kaupa á Mercedes Benz-bifreið. Upphæð samningsins var um fimm milljónir króna. Axel segir ljóst að fordæmisgildið sé gríðarlegt og í húfi séu tugþúsundir samninga upp á milljarða króna. Hann segir viðbrögðin hafa verið gríðarleg í kjölfar dómsins, en fjöldi jákvæðra símhringinga og ummæla fólks sem telur sig vera í sömu stöðu og fyrirtækið sé staðfesting á því. „Við töldum að á okkur hefði verið brotið og erum bara þeirra gerðar að við látum ekki slíkt yfir okkur ganga,“ segir Axel. Í tilkynningu frá Landsbankanum kemur fram að beðið hafi verið eftir dómnum og ánægju lýst með að niðurstaða skuli vera fengin og óvissu eytt sem ríkt hafi um endurreikning bílálána. „Landsbankinn hefur nú þegar hafið vinnu við að yfirfara endurreikning allra sambærilegra bílalánasamninga hjá bankanum. Þar sem við á mun endurreikningurinn verða leiðréttur þannig að hann verði í samræmi við niðurstöðu dómsins,“ segir þar. Lán sem þarfnast skoðunar í bankanum vegna dómsins eru sögð um það bil 30 þúsund talsins. „Vinnunni verður hraðað eins og auðið er og er gert ráð fyrir að fyrstu bílalánin verði leiðrétt í byrjun júlí næstkomandi.“
Mest lesið Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Ekki rétt sem Halla segir Innlent Fleiri fréttir „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Sjá meira