Innlent

6 milljónir til Flóttamannastofnunar SÞ

Kristján Hjálmarsson skrifar
Talið er að ríflega milljón börn hafi hrakist frá Sýrlandi.
Talið er að ríflega milljón börn hafi hrakist frá Sýrlandi.
Utanríkisráðherra hefur veitt 6 milljón króna framlag til Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna (UNHCR) vegna flóttamanna frá Sýrlandi og nágarannalöndum.

Tæpar tvær milljónir Sýrlendinga hafa hrakist á brott vegna átakanna þar í landi og er talið að ríflega milljón börn séu þar á meðal. Viðtökulöndin eiga í erfiðleikum með að sinna þessum mikla fjölda flóttafólks og sífellt berast nýjar beiðnir frá alþjóðastofnunum sem þurfa sárlega á stuðningi að halda til að geta veitt Sýrlendingum neyðaraðstoð.

Í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu segir að Ísland hafi veitt 45 milljónir í hjálparstarf vegna neyðarástandsins í Sýrlandi á árunum 2012 og 2013.

Um 22 milljónir fóru til Barnahjálpar SÞ (UNICEF) til stuðnings sýrlenskum börnum á landamærum Sýrlands og Jórdaníu, 6,5 milljónir króna til Flóttamannastofnunar SÞ (UNHCR) til aðstoðar þeim sem eru á vergangi innan Sýrlands, 6,5 millljónir til að styrkja Flóttamannastofnun SÞ fyrir Palestínuflóttamenn (UNRWA) í Líbanon sem veitir palestínskum flóttabörnum frá Sýrlandi nauðsynlega grunnþjónustu og 10 milljónir króna til Rauða kross Íslands vegna flóttamanna frá Sýrlandi sem hafast við í Jórdaníu, Írak og Líbanon.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×