Tillaga um móttöku flóttafólks samþykkt Haukur Viðar Alfreðsson skrifar 10. september 2013 17:58 Niðurstaða flóttamannanefndar er sú að hér á landi séu góðir innviðir til að taka á móti einstæðum mæðrum og ástæða til að halda því áfram. mynd/afp
Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í dag tillögu félags- og húsnæðismálaráðherra og utanríkisráðherra um móttöku flóttafólks árin 2013 og 2014. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Velferðarráðuneytinu í dag. Niðurstaðan er í samræmi við tillögu flóttamannanefndar og miðast við að tekið verði á móti konum í hættu frá Afganistan og hinsegin fólki frá Íran eða Afganistan, samtals 10 til 14 einstaklingum í tveimur hópum. Íslensk stjórnvöld hafa í samstarfi við Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna tekið reglulega á móti flóttafólki frá árinu 1996. Flóttamannanefnd kynnti fyrir skömmu þær áherslur sem hún telur að leggja beri til grundvallar við móttöku flóttafólks og lagði tillögu sína fyrir félags- og húsnæðismálaráðherra og utanríkisráðherra. Þar er rakið hvernig íslensk stjórnvöld hafa undanfarið horft sérstaklega til kvenna í neyð við móttöku flóttafólks með áherslu á einstæðar mæður og jafnframt gerð grein fyrir því að hinsegin fólk sé jafnframt afar viðkvæmur hópur flóttafólks sem sæti ofsóknum og mannréttindabrotum í heimalöndum sínum. Er niðurstaða flóttamannanefndar sú að hér á landi séu góðir innviðir til að taka á móti einstæðum mæðrum og ástæða til að halda því áfram. Jafnframt telji nefndin réttindi hinsegin fólks vel varin hér á landi og íslensk stjórnvöld geti því lagt lóð sín á vogarskálarnar með því að taka á móti hinsegin flóttafólki. Í kjölfar ákvörðunar ríkisstjórnarinnar í dag munu flóttamannanefnd og Útlendingastofnun vinna að framkvæmd málsins en Flóttamannastofnun Sameinuðu Þjóðanna veitir aðstoð við val þeirra flóttamanna sem boðið verður til Íslands.
Mest lesið Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Innlent Flugstjórinn þögull sem gröfin Innlent Gera ekki aðra atlögu Innlent Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi Innlent „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Fékk uppsagnarbréf og hótar málsókn Innlent Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Innlent Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Innlent Trump hjólar í páfa Erlent Fleiri fréttir Maðurinn sem fannst í Ölfusá er látinn Deilt um orðalag á kjörseðli, trúnaðarbrestur og vinsældir ráðherra Fékk uppsagnarbréf og hótar málsókn Miðflokkurinn úr leik í Árborg Krefja Ingu svara við leikskólaáformum Samfylkingarinnar „Við lítum þetta mál mjög alvarlegum augum“ Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi „Þetta er erfiður mánudagur“ Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Drengurinn kominn heim til sín Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Gera ekki aðra atlögu Lækka leikskólagjöld til að bregðast við verðbólgu Sjá ekki fyrir endann á ástandinu í fangelsunum Flugstjórinn þögull sem gröfin Lækka gjöld í sveitarfélaginu og fangaverðir segja kerfið komið að þolmörkum Erfiðara að berjast við stjórnvöld en að lifa með náttúruvá „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Lágflugið vekur athygli erlendis Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Vonar að skólastarf verði í bænum þrátt fyrir tilmælin Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ „Deilum við Norðmenn um meira en síld og makríl“ Hraða verði endurskoðun á endurgreiðslukerfinu Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Vonbrigði með tilmæli og bjórbann í Bláfjöllum Sjá meira