Það varð allt vitlaust 24. apríl 2013 16:00 Hulda Gunnlaugsdóttir prýðir forsíðu Nýs lífs.
Hulda Gunnlaugsdóttir, fyrrverandi forstjóri Landspítalans og núverandi forstjóri Ahus-spítala í Noregi, hafði betur í rimmu við norska landlækninn, sem setti allt á annan endann í Noregi. Hulda er í forsíðuviðtali í nýjasta tölublaði tímaritsins Nýtt líf þar sem kemur fram að norski landlæknirinn fullyrti að spítali Huldu væri rekinn með óforsvaranlegum hætti. Fleiri læknamistök yrðu þar en á öðrum spítölum. Hulda svaraði landlækninum fullum hálsi og vakti fyrir það mikla fjölmiðlaathygli í Noregi. Á endanum þurfti landlæknirinn að bakka með áfellisdóminn. „Þetta var gríðarlega harður dómur og harkaleg gagnrýni fylgdi í kjölfarið. Það varð allt vitlaust,“ segir Hulda sem varð að fara ofan í saumana á öllu sem fram kom í skýrslu landlæknisins og bregðast við því. Landlæknirinn sendi frá sér skýrsluna í júlí í fyrra eftir að lögreglan hafði haft þrettán óeðlileg dauðsföll sjúklinga á Ahus til rannsóknar. Talið er fullvíst að hægt hefði verið að bjarga þeim öllum. Neyðarástand hafði ríkt á spítalanum um nokkra hríð þar sem skorti að minnsta kosti 400 starfsmenn. Hulda segir í viðtalinu að ástandið skýrðist af umfangsmestu breytingum sem gerðar hafa verið á norska heilbrigðiskerfinu. Fjöldi sjúklinga hafi verið aukinn en illa gekk að fá fólk til starfa. „Við bárum saman læknamistök og óeðlileg dauðsföll milli ára og bárum tölurnar svo saman við aðra spítala í landinu. Ég svaraði landlækni með ítarlegu bréfi sem ég vann með starfsfólki spítalans þar sem ég sýndi fram á að við vorum höfð fyrir rangri sök,“ segir Hulda. „Ég gat ekki sætt mig við að starfsfólkið okkar hefði þennan stimpil fyrir að framfylgja pólitík sem var samþykkt í Stórþinginu. Eins og með öll opinber bréfasamskipti í Noregi, þá var þetta aðgengilegt öllum, þar á meðal fjölmiðlum. Þá varð algjör sprenging. Það hefur ekki áður gerst í Noregi að landlækni sé svarað fullum hálsi... á endanum bakkaði hann,“ segir Hulda. Í kjölfarið á því að málið komst í hámæli var helstu stjórnendum sem komu að því skipt út, þeirra á meðal heilbrigðisráðherra Noregs. Hulda hélt aftur á móti stöðu sinni.
Mest lesið Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Erlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Máttu tæma lónið Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Fleiri fréttir Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Bein útsending: Landbúnaður í heimi breytinga Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Sjá meira