Enginn lést vegna ölvunaraksturs í fyrra Hanna Ólafsdóttir skrifar 24. apríl 2013 06:00 Banaslysum í umferðinni hefur fækkað mikið á síðustu árum.
Banaslysum í umferðinni hefur fækkað mikið á síðustu árum. Samkvæmt slysaskýrslu Umferðarstofu 2012 létust níu manns í umferðinni árið 2012, sem er um 28 á hverja milljón íbúa en það er með því allra lægsta í heiminum. Síðastliðin fimm ár, eða á árunum 2008 til 2012, hafa 58 látist í umferðarslysum á Íslandi en næstu fimm ár þar á undan, 2003 til 2007, létust 111 með sama hætti. Það er um 48 prósenta fækkun. Enginn lést vegna ölvunar við akstur á síðasta ári og er það einsdæmi síðan skráningar hófust árið 1986. Í skýrslunni kemur hins vegar fram að einn hafi látist af völdum fíkniefnanotkunar og einn vegna löglegra lyfja. Alvarlega slösuðum fækkar einnig á milli ára úr 154 í 136, eða um tólf prósent. Lítið slösuðum fækkar einnig talsvert, eða úr 1.063 í 899, sem er 15 prósenta lækkun. Í heildina fækkar látnum og slösuðum úr 1.229 í 1.044. Slysum meðal ungra ökumanna á aldrinum 17-20 ára hefur einnig fækkað mjög og þá sérstaklega frá árinu 2007 þegar svokallað akstursbann var sett í lög. Samkvæmt því er handhafi bráðabirgðaskírteinis settur í ótímabundið akstursbann ef hann fær fjóra punkta í ökuferilsskrá eða er sviptur ökuréttindum vegna alvarlegra umferðarlagabrota. Akstursbanninu er ekki aflétt fyrr en að loknu sérstöku námskeiði og endurtöku ökuprófs.
Mest lesið Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Erlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Máttu tæma lónið Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Fleiri fréttir Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Sjá meira