Barnið lést, þrátt fyrir bænirnar Jóhannes Stefánsson skrifar 24. apríl 2013 14:58 Læknavísindin hafna því að bænir geti læknað sjúkdóma Mynd/ Getty
Par búsett í Fíladelfíu gæti átt von á ákæru vegna dauða sonar þeirra. Parið er á skilorði vegna dauða annars barns árið 2009, en parið vanrækti að fara með barnið til læknis og notaðist þess í stað við bænir. Herbert og Catherine Schiable tilheyra strangtrúuðum kristilegum samtökum sem trúa að lækna megi sjúkdóma með trúarlegri heilun. Parið missti átta mánaða gamlan son sinn, Brandon, í seinustu viku. Hann hafði verið með niðurgang, átti erfitt með andardrátt í að minnsta kosti viku og var hættur að nærast. Ákæruvaldið sagði á þriðjudaginn að beðið væri eftir niðurstöðum krufningar áður en ákvörðun um ákæru væri tekin. Lögmaður Catherine bað fólk um að draga ekki ályktanir og segir parið góða foreldra. Hann bætti við að parið væri í mikilli sorg vegna missis annars barns. „Það eru mun fleiri spurningar en svör sem liggja fyrir í málinu. Við erum ekki búin að sjá krufningarskýrsluna. Við vitum ekki hver dánarorsökin var," sagði lögmaðurinn við Associated Press. „Það sem liggur fyrir er að þau eru mikið niðri fyrir, þau eru ofboðslega sorgmædd yfir því að hafa misst barnið sitt." Kviðdómur sakfelldi parið fyrir manndráp af gáleysi í janúar 2009, eftir að tveggja ára sonur þeirra lést. Drengurinn hafði verið með hósta, önugheit og litla matarlyst. Foreldrarnir sögðu að hann hefði nærst fram á hinsta dag og að þau hefðu haldið að hann væri að ná sér. Parið fékk tíu ára skilorð fyrir glæpinn. Dómari sagði við parið á mánudaginn að það hafi rofið skilorð í ljósi þess að þau hafi tjáð rannsakendum að þau hefðu leitað á náðir Guðs með bænum, í stað þess að leita læknisaðstoðar fyrir drenginn. „Þið hafið gert þetta áður með skelfilegum afleiðingum," sagði dómarinn, samkvæmt Philadelphia Daily News. Ákæruvaldið hafði farið fram á að þau yrðu sett í gæsluvarðhald en því var hafnað af dóminum vegna þess að hinum sjö börnunum þeirra hafði verið komið á fósturheimili. „Hann [dómarinn innsk. blm.] lítur þannig á að þau séu ógn við börnin sín - ekki samfélagið í kring heldur sín eigin börn," sagði aðstoðarsaksóknarinn Joanne Prescatore sem fór með fyrra málið gegn hjónunum, á mánudag. Herbert Schaible, og konan hans ólust upp í First Century Gospel Church kirkjunni í norðaustur Fíladelfíu og hafa kennt við kirkjuna. Á vefsíðu kirkjunnar má sjá námskeið titlað: „Lækningar - Á vegum Guðs eða lyfja?" en þar má finna tilvitnanir í Biblíuna sem virðast banna kristnum að njóta læknisaðstoðar eða lyfjameðferða. Nánar er fjallað um málið á vef ABC News.
Mest lesið Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Erlent Máttu tæma lónið Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Innlent Fleiri fréttir Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Sjá meira