Hljómsveitin Hide Your Kids kíkti í heimsókn í þáttinn Popp og kók til Unnar Eggertsdóttur og tók lagið Kókaloca.
Söngvari hljómsveitarinnar sýnir mikil tilþrif, sem er einkar viðeigandi, enda fjallar textinn meðal annars um að dansa eins og brjálæðingur.
Hljómsveitin tók þátt í Músíktilraunum á þessu ári og hitaði upp fyrir Of Monsters and Men á útitónleikum í Garðabæ í sumar.
