Jón Gnarr varð fyrir hrottalegu einelti Jón Hákon Halldórsson skrifar 29. maí 2013 11:28 Jón Gnarr borgarstjóri lýsir eineltinu sem hann varð fyrir í nýju blaði Barnaheilla.
Jón Gnarr borgarstjóri varð fyrir miklu einelti þegar hann var í Réttarholtsskóla í Reykjavík. Hann var alltaf kallaður Ljóti. „Eiginlega alveg frá fyrsta degi. Ég var kallaður Ljóti;.... Hey Ljóti, ertu pönkari. Hey Ljóti, af hverju ertu svona ljótur. Svo urðu þetta pústrar og hrindingar og alls kyns áreiti. Það voru alltaf eldri strákar sem stóðu fyrir þessu, en ég man aldrei eftir að stelpa hafi tekið þátt í einelti gagnvart mér,“ segir Jón í samtali við nýtt blað Barnaheilla – Save the Children á Íslandi sem kom út í gær. Hann segir að skólafélagarnir hafi gert ýmislegt til þess að gera honum lífið leitt. Dótið hans hafi veirð tekið úr skólatöskunni hans og því hent í klósettið. Svo hafi eineltið stigmagnast í líkamlegt ofbeldi. Áfram hafi hann verið kallaður heimskur og ljótur. Jón Gnarr segir að þeir sem verði fyrir einelti verði að hafa í huga að eineltið er ekki þeim að kenna og þeir beri ekki ábyrgð á því. Mikilvægt sé fyrir þá sem verða fyrir einelti að finna einhvern sem þeir geti talað við um það og fengið hjálp frá einhverjum sem þeir treysta. Í nýju blaði Barnaheilla er farið yfir helstu verkefni samtakanna og þar eru einnig viðtöl við ýmsa aðila um þætti sem snúa að starfsemi Barnaheilla og viðtöl við ýmsa einstaklinga, auk Jóns Gnarr, sem láta sig málefni barna varða. Til dæmis talar Gunnar Hansson um kynferðislega misnotkun sem hann varð fyrir og hvernig hann hefur tekist á við þá reynslu, Vigdís Finnbogadóttir er verndari Barnaheila og talar hún um sýn sína á framtíð barna. Í tilefni af útgáfu blaðsins var boðið til teitis á Marína í gær og má sjá nokkrar þeirra hér að ofan.
Mest lesið Eldur kviknaði á Völlunum Innlent Ísraelsher viðurkennir að hafa skotið fimm ára stúlku Erlent Vaxtahækkunin geti gert illt verra Innlent Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra Innlent „Við höfum ekki náð þeim árangri sem við hefðum viljað“ Innlent Með nefið í flugbrautinni eftir harkalega lendingu Innlent Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ Innlent Meintur Kársnesmorðingi handtekinn í Barcelona Innlent Lýsir áfalli vegna vinnubragða gamla meirihlutans Innlent Aðstoða grunnskólabörn Reykjavíkur við heimanám Innlent Fleiri fréttir Eldur kviknaði á Völlunum Vaxtahækkunin geti gert illt verra Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra Settu saman fyrsta íslenska fjölerfðamengið Sammála því að erfitt haust sé í vændum Aðstoða grunnskólabörn Reykjavíkur við heimanám Betur fór en á horfðist þegar flutningabíll valt „Við höfum ekki náð þeim árangri sem við hefðum viljað“ Samþykkti samninginn: „Lágmark að láta fjármagn fylgja“ Með nefið í flugbrautinni eftir harkalega lendingu Fjármálaráðherra og vinnumarkaðurinn bregðast við vaxtahækkun SVÞ og netáfengisverslanir skora á Alþingi Lýsir áfalli vegna vinnubragða gamla meirihlutans Gæsluvarðhald framlengt yfir meintum Kársnesmorðingjum Ránfugl gæddi sér á smáfugli í Vesturbænum Gæti séð fyrir sér að kjarasamningar haldi Hafi byrlað tólf ára fósturdóttur og nauðgað ítrekað Vilja banna frjáls ferðalög ísraelskra ferðamanna á Íslandi Meintur Kársnesmorðingi handtekinn í Barcelona Brotin úr jakanum geti valdið flóðbylgju Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ „Jón Sigurðsson nefndi aldrei sjálfstæði“ Stýrivextir hækka og borgarísjaki í Djúpinu Stefán Einar og Diljá Mist mættu Helgu Völu og Baldri Maríjon aðstoðar þingmenn Sjálfstæðisflokksins Lítið jökulhlaup hafið í Múlakvísl Loka Hagaborg í það minnsta í tvö ár Ingunn játar að hluta í Reykholtsmálinu Flutningabíll á hliðinni í Ártúnsbrekku Áætlaður kostnaður vegna símafrísins 75 milljónir króna Sjá meira