„Virðist sem stefna borgarstjórnar sé að gera Reykjavíkurflugvöll óstarfhæfan“ Haukur Viðar Alfreðsson skrifar 12. september 2013 18:55 FÍA telur hugmyndir um að loka annarri aðalflugbraut vallarins þýða að nýtingarstuðullinn fari niður fyrir þann sem ásættanlegur sé til flugreksturs. mynd/stefán
Félag íslenskra atvinnuflugmanna (FÍA) hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna flugvallarmálsins og í henni segir að svo virðist sem stefna borgarstjórnar Reykjavíkur sé að gera Reykjavíkurflugvöll óstarfhæfan. FÍA segist undrast þá stefnu borgarstjórnar Reykjavíkur að vega að atvinnustarfsemi og störfum í Reykjavík, bæði vegna félagsmanna sinna, sem og annarra. „Á þetta ekki síst við í ljósi þess efnahagsástands sem við búum við,“ segir í yfirlýsingunni. „Með fyrirhugaðri lokun flugbrautar eða flugvallarins í heild sinni tapast störf og starfsemi þeirra fyrirtækja er þar starfa. Bein afleiðing þess er aukið atvinnuleysi og minnkandi tekjur.“ Þá telur FÍA hugmyndir um að loka annarri aðalflugbraut vallarins þýða að nýtingarstuðullinn fari niður fyrir þann sem ásættanlegur sé til flugreksturs og muni marka endalok flugreksturs í Reykjavík þekkist í dag.Yfirlýsing FÍA í heild sinni:Svo virðist vera að stefna borgarstjórnar Reykjavíkur sé að gera Reykjavíkurflugvöll óstarfhæfan, án þess að hafa haldbæra lausn á því vandamáli. Ekki hefur verið tekið tillit til álits fagaðila í þessu umfangsmikla máli þrátt fyrir skýrslur og ráðstefnur um málið.FÍA undrast þá stefnu borgarstjórnar Reykjavíkur að vega að atvinnustarfsemi og störfum í Reykjavík, bæði vegna félagsmanna sinna, sem og annarra. Á þetta ekki síst við í ljósi þess efnahagsástands sem við búum við. Með fyrirhugaðri lokun flugbrautar eða flugvallarins í heild sinni tapast störf og starfsemi þeirra fyrirtækja er þar starfa. Bein afleiðing þess er aukið atvinnuleysi og minnkandi tekjur.Hugmyndir um að loka annarri aðalflugbraut Reykjavíkurflugvallar, eins og gert hefur verið ráð fyrir í aðalskipulagi Reykjavíkurborgar, þýðir einfaldlega að nýtingarstuðullinn fer niður fyrir þann sem ásættanlegur er til flugreksturs og mun marka endalok flugreksturs í Reykjavík sem við þekkjum í dag. Að loka Reykjavíkurflugvelli án þess að hafa annan sambærilegan flugvöll í hans stað er óábyrgt.FÍA undrast að enn og aftur beinist umræðan að flugvelli á Hólmsheiði sem fýsilegum kosti, þrátt fyrir að fram hafi komið upplýsingar um að Hólmsheiði uppfylli alls ekki kröfur sem gerðar eru til flugvallarstæðis. Þar má nefna skýrslu Isavia um hugsanlegan flutning vallarins á Hólmsheiði.Ennfremur bendir FÍA á að Reykjavíkurflugvöllur gegnir mikilvægu hlutverki sem varavöllur fyrir Keflavíkurflugvöll. Að sama skapi gegnir Keflavíkurflugvöllur mikilvægu hlutverki sem varavöllur fyrir Reykjavíkurflugvöll, sem er forsenda fyrir innanlandsflugi um Reykjavíkurflugvöll.Ljóst er að ef innanlandsflug og sjúkraflug, eins og við þekkjum í dag, eigi að vera til staðar í framtíðinni, þarf til þess flugvöll og er enginn annar hentugri en sá sem fyrir er í Vatnsmýrinni, enn sem komið er. Einnig vill FÍA minna á að Reykjavíkurflugvöllur gegnir mikilvægu hlutverki í almannavörnum Íslands.FÍA lýsir yfir eindregnum stuðningi við hópinn „Hjartað Í Vatnsmýri“ og hvetur alla landsmenn til að kynna sér efnið á síðunni www.lending.is.
Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Fleiri fréttir „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Sjá meira