Yfirlæknar og prófessorar óttast óbætanlegt tjón á Landspítalanum Jóhanna Margrét Einarsdóttir skrifar 12. september 2013 07:00 Eftir langvarandi niðurskurð er lyflækningasvið Landspítala svo illa statt að það getur ekki risið undir hlutverki sínu að sögn yfirlækna og prófessora á sjúkrahúsinu. Fréttablaðið/Vilhelm „
Ein meginstoðin í gangverki Landspítala, lyflækningasviðið, glímir nú við erfiðleika sem gætu hæglega valdið óbætanlegu tjóni ef ekki verður tafarlaust brugðist við með viðeigandi aðgerðum,“ segir í Fréttablaðsgrein 20 yfirlækna og prófessora á Landspítalanum. Í greininni í Fréttablaðinu í dag er fjallað um það ófremdarástand sem ríkir á lyflækningasviði sjúkrahússins vegna langvarandi niðurskurðar og atgervisflótta almennra lækna og sérfræðinga. „Staðan á lyflækningasviði er grafalvarleg og ástandið gæti haft keðjuverkandi áhrif á önnur svið sjúkrahússins sem einnig eiga undir högg að sækja,“ segja læknarnir. Nú þegar sé fækkun lækna í einstökum sérgreinum orðin grafalvarleg. Þá er fjallað um trúnaðarbrest milli almennra lækna og stjórnenda spítalans og hversu mikið laun lækna hafa dregist aftur úr öðrum stéttum. Húsnæði Landspítalans sé úr sér gengið, starfsaðstaða ófullnægjandi og tækjakostur bágur. Læknarnir segja að skjótra aðgerða sé þörf ef ekki eigi illa að fara.Lesa má greinina í heild sinni í Fréttablaðinu í dag og á Vísi.
Mest lesið Lögreglan tekur leigubílamálin fastari tökum Innlent Sendiherra á Íslandi á grundvelli misskilnings Innlent Úkraína og Evrópa óttast meðvirkni Trump Erlent Eiganda Trump Burger verður sparkað úr landi Erlent Pallaball fram á rauðanótt: „Farðu og finndu fólkið þitt!“ Innlent Bjartsýn á að Trump nái árangri með Pútín Erlent Amma ræsti neyðarhnapp við enn eina árás dóttur sinnar Innlent Taka þurfi ráðgjöf Hafró til endurskoðunar Innlent Alelda bíll á Emstruleið Innlent Lést eftir skyndileg veikindi við klettastökk Innlent Fleiri fréttir Sendiherra á Íslandi á grundvelli misskilnings Pallaball fram á rauðanótt: „Farðu og finndu fólkið þitt!“ Lögreglan tekur leigubílamálin fastari tökum Vond staða Úkraínu, furðukenning um geimverur og Gleðigangan Taka þurfi ráðgjöf Hafró til endurskoðunar Alelda bíll á Emstruleið Vond niðurstaða Úkraínu, ásakanir á hendur sáttasemjara og síðasta hlaupið Mikill meirihluti hefur áhyggjur af stríðsátökum Rannsaka ásakanir á hendur ríkissáttasemjara Samdráttur og vítahringur í boði stjórnvalda Ekki stafi lengur tilvistarógn af Hamasliðum Lést eftir skyndileg veikindi við klettastökk Segjast ekkert hafa vitað um hætturnar í Reynisfjöru Féll fjóra metra í vinnuslysi í Kópavogi Ómeðvitaðir ferðamenn í Reynisfjöru, síbökuð hjón og tölvuspil fram á nótt Enginn árangur af „veiða og sleppa“ aðferðinni Flokkarnir dæla milljónum í áróður á Meta Hræðast að fleiri en einn fari í sjóinn Átökin „hvorki vegna né þrátt fyrir“ áfengissöluna Heitavatnslaust í Laugardal Lést við flúðasiglingar í Vestari-Jökulsá Langflestir telja sig búa á góðum stað fyrir samkynhneigða Áttu ekki von á neinu veseni og viðbúnaður eftir því Amma ræsti neyðarhnapp við enn eina árás dóttur sinnar Maður féll í Vestari-Jökulsá Fangar í einangrun vegna sama máls noti ekki sama útisvæði Hundarnir þegar aflífaðir en ákvörðun um lógun ólögmæt Samskipti fanga í einangrun, tapsárir Danir og drottning Gleðigöngunnar Allir fundir við ESB „fyrst og fremst“ hagsmunagæsla Telja að lífvörður myndi aðeins gera ferðamenn kærulausari Sjá meira