Fækkun starfsfólks um áramót Þorbjörn Þórðarson skrifar 30. september 2013 12:00 Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari „
Ég get ekkert tjáð mig um þetta núna. Við getum ekkert sagt fyrr en fjárlagafrumvarpið er komið fram,“ segir Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari, um fyrirhugaða fækkun starfsmanna hjá embættinu. Fréttablaðið hefur heimildir fyrir því að talsverð fækkun verði um næstu áramót. „Á meðan það er ekki komin ákvörðun þá getur maður ekkert sagt. Auðvitað sjáum við hvað í stefnir þegar við erum búin að sjá tölurnar.“ Ólafur Þór segir að embættið hafi skilað tillögugerð til innanríkisráðuneytisins varðandi fjárlög næsta árs en síðan fengið upplýsingar um að hún næði ekki fram að ganga. Embættið hefur minnkað starfsemina um tíu prósent og fækkað starfsmönnum eftir því en starfsmenn eru nú 99, en voru 109 á síðasta ári. Í fjárlögum 2012 fékk embættið 1,3 milljarða króna en það framlag var lækkað um tæplega hálfan milljarð króna í fjárlögum þessa árs niður í 849 milljónir. Embættið átti uppsafnaðar fjárheimildir upp á 487 milljónir króna sem að langstærstum hluta voru nýttar á þessu ári. Það eru því ekki teljandi fjármunir til að flytja yfir á næsta ár. Ólafur segir að enn séu sextíu hrunmál í rannsókn hjá embættinu. Í áætlun frá 2010 var gert ráð fyrir því að embættið starfaði út árið 2014. En hvernig sér Ólafur embættið fyrir sér á árinu 2014? „Það fer eftir því hvað fæst í reksturinn. Það eru fjárframlögin sem stýra stærð og umfangi starfseminnar,“ segir Ólafur.
Mest lesið „Þá er verið að hugsa um mögulegt viðbragð í neyðarástandi“ Innlent Nágranninn bjargaði Sævari sem missti næstum af almyrkvanum Innlent Sigurgeir þurfti að hætta og var fluttur á sjúkrahús Innlent Það er jóker í spilinu Innlent Brotist inn í Barnaloppuna Innlent Ísraelskir ferðamenn með ógnandi tilburði á palestínsku kaffihúsi Innlent Fjöldi ökumanna á von á kæru Innlent „Bara, hvað dettur gömlu fólki í hug að gera?“ Innlent Á sjötta tug björgunarsveitarfólks kom að björguninni Innlent Spánverjum fjölgar þvert á þróunina Innlent Fleiri fréttir Viðreisn fjarlægir bænina af Facebook: „Við viljum ekki særa fólk“ Gerir upp hús hannað af Guðjóni Samúelssyni Á sjötta tug björgunarsveitarfólks kom að björguninni Ekki fleiri tilkynnt innbrot síðan 2022 „Þá er verið að hugsa um mögulegt viðbragð í neyðarástandi“ Þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð út vegna veikinda Forystumenn láti stór orð falla sér og sínum málstað til framdráttar Þyrlan sótti slasaðan göngumann við Glym Spánverjum fjölgar þvert á þróunina Sigurgeir þurfti að hætta og var fluttur á sjúkrahús Það er jóker í spilinu Skoða hvort gerviaðgangar og grunsamlegar síður séu erlend öfl í dulbúningi Páll Magnússon tekur við af Kristjáni Nágranninn bjargaði Sævari sem missti næstum af almyrkvanum Brotist inn í Barnaloppuna Kristján Kristjánsson kveður Sprengisand Íbúi í Kænugarði um stríðið og áhyggjur lögreglu af erlendum áhrifum á ESB-kosningu Fortíð og framtíð Íslands í Evrópu á Sprengisandi Mundaði stólinn og lamdi gesti „Bara, hvað dettur gömlu fólki í hug að gera?“ Þrengja Reykjaveg og loka tveimur götum við Laugarnesskóla Fjöldi ökumanna á von á kæru Ísraelskir ferðamenn með ógnandi tilburði á palestínsku kaffihúsi Þyrlan sækir slasaðan mann á Hestfjall Miðflokksmenn helmingi líklegri til að segja já en Sjálfstæðismenn Ósátt með fyrirhugaða sameiningu lögregluembætta Grindvískir krakkar sneru aftur á völlinn Lögnin komin á land en verður látin kyrr liggja „Önnur ríki með sérþarfir hafa miklu meira vægi í þeirri umræðu“ Bananastappa og hlaupbangsar á matseðlinum í tilraun tvö Sjá meira