Skoðun

Er bjartsýni við hæfi?

Ólafur G. Skúlason skrifar
Umræða síðustu daga varðandi heilbrigðiskerfið hefur vakið með mér aukna bjartsýni. Margir verða örugglega hissa á þessari upplifun minni en hana er einfalt að skýra. Síðastliðna daga hefur hver þingmaðurinn á fætur öðrum komið fram í fjölmiðlum eða haldið tölu á þingi um vandamál heilbrigðisþjónustunnar.

Allir eru þeir sammála um að nauðsynlegt sé að standa vörð um heilbrigðiskerfið og forgangsraða málunum þannig að aukið fjármagn verði varið til þess, einkum til Landspítala. Ég get því ekki búist við öðru en að þingmenn taki saman höndum, þvert á flokkslínur, og finni lausn á viðvarandi fjársvelti heilbrigðiskerfisins. Eitt er víst að þjóðin er þeim sammála í þessum efnum.

Það sem veldur mér hins vegar áhyggjum eru frásagnir heilbrigðisstarfsmanna sem nú stíga fram og lýsa því ástandi sem ríkir innan veggja Landspítalans. Ástandi sem hefur varað í ansi langan tíma. Heyrst hafa raddir sem segja að ástandið geti ekki verið eins slæmt og sagt er, en því get ég lofað, að enginn þeirra sem fram hafa komið í fjölmiðlum fer með ýkjur. Það viðheldur þó bjartsýni minni að loks hafi heilbrigðisstarfsfólk stigið fram og gert grein fyrir þeim aðstæðum sem nú ríkja í heilbrigðiskerfinu. Það að orða vandamálin er fyrsta skrefið í að finna á þeim lausn.

Á heimsmælikvarða

Við sem búum hér á landi erum heppin. Heppnin felst í því að við eigum heilbrigðisstarfsmenn á heimsmælikvarða hvað varðar menntun, þekkingu og færni. Það er fyrir tilstuðlan þessa fólks að heilbrigðiskerfið okkar hefur haldist gangandi hingað til. Það er því mikilvægt að hlustað sé á það þegar það stígur fram og segir hingað og ekki lengra. Það hafi ekki lengur tök á að veita þá þjónustu sem það annars myndi vilja veita hefði það til þess tíma og úrræði. Það hlýtur að vera forgangsatriði að búa þannig um hnútana að það geti sinnt starfi sínu eftir bestu getu.

Landflótti lækna og hjúkrunarfræðinga undanfarin ár er staðreynd enda laun og starfsaðstæður erlendis mun ákjósanlegri en hérlendis. Vitað er að Ísland mun aldrei verða samkeppnishæft við erlend ríki varðandi launakjör þar sem hin háu laun erlendis eru tilkomin vegna veikrar stöðu krónunnar gegn erlendum gjaldmiðlum. Það er hins vegar hægt að haga málum þannig hér að heilbrigðisstarfsfólk fái laun sem samræmast menntun þeirra og ábyrgð. Það er einnig hægt að bæta vinnuumhverfi þess og tækjabúnað svo það geti sinnt sínu starfi á fullnægjandi hátt.




Skoðun

Sjá meira


×