Segir framlag háskólans duga til að steypa upp húsið Stígur Helgason skrifar 2. ágúst 2013 07:00 Svona á húsið að líta út tilbúið.
Hægt væri að steypa upp Hús íslenskra fræða við Suðurgötu og ganga frá umhverfi þess fyrir eftirstöðvarnar af beinu framlagi Háskóla Íslands til verkefnisins, að sögn forstöðumanns Árnastofnunar. Illugi Gunnarsson menntamálaráðherra sagði í samtali við RÚV fyrir viku að til greina kæmi að hætta alveg við byggingu hússins í sparnaðarskyni, þótt hann væri ekki hlynntur þeirri leið, og alltént þyrfti að skoða það að gera breytingar á verkhraðanum.Guðrún Nordal„Það er mjög eðlilegt, og í raun æskilegt, að ný stjórnvöld fari vel yfir allar opinberar framkvæmdaáætlanir,“ segir Guðrún Nordal, forstöðumaður Árnastofnunar. „Undirbúningur við byggingu Húss íslenskra fræða hefur staðið í fimm ár. Hönnun er að fullu lokið og framkvæmdir þegar hafnar. En það er vitaskuld spurning um verkhraðann,“ segir hún. „Það gleymist hins vegar stundum í umræðunni um Hús íslenskra fræða að byggingin er sameiginlegt verkefni ríkisins og Háskóla Íslands. Nú þegar hafa þessir aðilar varið um sex hundruð milljónum króna til verksins, og hægt væri að steypa húsið upp og ganga frá umhverfi þess með eftirstöðvum af framlagi Háskóla Íslands eingöngu. Ég er því vongóð að byggingarframkvæmdir við þetta mikilvæga hús komist á góðan skrið á þessu 350. afmælisári Árna Magnússonar,“ segir Guðrún Nordal.
Mest lesið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Innlent Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Innlent Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu Innlent CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Innlent Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Erlent Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Innlent Helgi Bjartur dæmdur í tólf mánaða fangelsi Innlent Bækurnar of leiðinlegar og forritaði stærðfræðitölvuleik Innlent Ingimar er bæjarstjóraefni D-listans í í Hveragerði Innlent Fleiri andvígir aðild nú en í fyrra Innlent Fleiri fréttir Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Fleiri andvígir aðild nú en í fyrra Ingimar er bæjarstjóraefni D-listans í í Hveragerði Bækurnar of leiðinlegar og forritaði stærðfræðitölvuleik „Vélin að bila og hún stingur upp á að við skiptum um áklæði“ Lögðu hald á um tug lítra fíkniefna Æfir kennarar og varað við verðstýringu Mótorinn í Herjólfi þarf til útlanda Margir sátu hjá þegar launin voru hækkuð Halla Bergþóra nýr ríkislögreglustjóri „Nú hef ég auðvitað ekkert á móti fólki frá Nígeríu“ Dómur yfir Helga Bjarti: Fara þyrfti varlega í að draga ályktanir út frá framburði drengsins Rannsóknin á lokametrunum Fjórir landsréttardómarar vilja taka skrefið í Hæstarétt Forsetar Íslands og Slóveníu ræða leiðtogahlutverk í breyttum heimi Segir forsætisráðuneytið misnotað í þágu sveitarstjórnarkosninga Sjálfsmark með „sjúklega samfylkingarlegu“ kjötvörubanni Framkoman laði ekki lækna að Landspítalanum Ók á móti umferð í Hvalfjarðargöng með lögregluna á hælunum Helgi Bjartur dæmdur í tólf mánaða fangelsi Eimskip líta smyglið mjög alvarlegum augum „Já, ég er dálítið reiður“ Matarstefnan bara „orð út í loftið“ Töldu framboðinu ekki til framdráttar að mæta í þáttinn Verð á stökum miða í sund hækkar en árskortið lækkar Árni vill stöðuna þrátt fyrir auglýsingu Skjálfti vegna Írisar innan Sjálfstæðisflokksins í Eyjum Sjá meira