Algjör glundroði á Ítalíu eftir dóm Berlusconi Heimir Már Pétursson skrifar 2. ágúst 2013 13:27 Ólafur Gíslason blaðamaður og sérfræðingur í málefnum Ítalíu segir fólk þar í landi búið að fá nóg af sápuóperunni í kringum Berlusconi.
Sérfræðingur í málefnum Ítalíu segir algeran glundroða ríkja í ítölskum stjórnmálum eftir að Silvio Berlusconi fyrrverandi forsætisráðherra var dæmdur í fjögurra ára fangelsi í gær. Þjóðin sé búin að fá sig fullsadda af þeirri sápuóperu sem ríkt hafi í kringum Berlusconi undanfarin tuttugu ár. Fáir forsætisráðherrar hafa verið eins fyrirferðarmiklir á hinu pólitíska sviði á Ítalíu og í Evrópu og Silvio Berlusconi undanfarin tuttugu ár. Hann hefur ítrekað verið fyrir dómstólum fyrir hin fjölbreyttustu mál sem tengjast sköttum, viðskiptum og kvennamálum en alltaf komist hjá dómi þar til nú, að hann var dæmdur í fjögurra ára fangelsi fyrir skattsvik. Berlusconi situr ekki í ríkisstjórn en flokkur hans er hluti samsteypustjórnar með Demókrataflokknum. Ólafur Gíslason blaðamaður og sérfræðingur í málefnum Ítalíu segir að það undarlega í stöðunni sé að það geti enginn komið fram og sagst geta tekið við keflinu af Berlusconi. „Flokkur hans er stofnaður í kringum eiginhagsmuni Berlusconi og þetta er flokkur sem byggir algerlega á honum sem persónu og flokkurinn hefur ítrekað að hann standi með sínum foringja. En formlega séð mun þingið vera nauðbeygt til að svifta hann þingsæti og formlega séð fær hann ekki að bjóða sig fram í næstu kosningum,“ segir Ólafur. Þetta sé hins vegar veruleiki sem Berlusconi sjálfur virðist ekki geta horfst í augu við vegna þess að hann hafi þegar lýst því yfir í gær að hann óskaði eftir stuðningi þjóðarinnar til að ná meirihluta á ítalska þinginu í næstu kosningum. Þar með hafi hann farið í andstöðu við þá stjórn sem flokkur hans sitji í núna. Það ríki því fullkomið óvissuástand í ítölskum stjórnmálum og spurning hvernig Demókrataflokkurinn geti setið áfram í stjórn með flokki sem er með stórafbrotamann í sinni forystu. Þannig að þetta hleypir upp öllu pólitísku lífi á Ítalíu? „Það er alger glundroði og ekki hægt að sjá hvernig er hægt að leysa þennan hnút,“ segir Ólafur. Hann segir flokk Berlusconi njóta tæplega 30 prósenta fylgis um þessar mundir og það megi gagnálykta út frá því að um 70 prósent ítölsku þjóðarinnar hafi óbeit á forsætisráðherranum fyrrverandi. „Þjóðin er búin að fá sig fullsadda af þessari sápuóperu. Það eru margir farnir að gera sér grein fyrir að það er ekki hægt að standa í þessu endalaust. Þetta er jú bara sápuópera, endalaust stríð við dómsvaldið og svo þessi hneykslismál öll sem ganga út yfir allan þjófabálk varðandi kvennamál og annað,“ segir Ólafur Gíslason.
Mest lesið Flutningabíll á hliðinni í Ártúnsbrekku Innlent Ingunn játar að hluta í Reykholtsmálinu Innlent Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Innlent Fedorov kallar eftir forsetakosningum í Úkraínu Erlent Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Innlent Áætlaður kostnaður vegna símafrísins 75 milljónir króna Innlent Eiga eftir að taka umsækjendur í viðtöl Innlent Loka Hagaborg í það minnsta í tvö ár Innlent Víðtækar götulokanir á nýrri hlaupaleið Reykjavíkurmaraþons Innlent Áhyggjufullir bandamenn í Asíu: Vilja taka fulla stjórn á eigin vörnum Erlent Fleiri fréttir Maríjon aðstoðar þingmenn Sjálfstæðisflokksins Lítið jökulhlaup hafið í Múlakvísl Loka Hagaborg í það minnsta í tvö ár Ingunn játar að hluta í Reykholtsmálinu Flutningabíll á hliðinni í Ártúnsbrekku Áætlaður kostnaður vegna símafrísins 75 milljónir króna Víðtækar götulokanir á nýrri hlaupaleið Reykjavíkurmaraþons Eiga eftir að taka umsækjendur í viðtöl Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Fimmtíu milljarðarnir kveiktu í Pallborðinu Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Hótelgestir þeirra eru fjórfætlingar Djúpfölsun nýtt til fjársvika á gervifjarfundum Íbúar Bolungarvíkur urðu varir við borgarísjaka Hin hliðin ljúgi að landsmönnum „Salami-aðferðin“ geri það erfitt að hætta við Verktakar óttast stýrivaxtahækkun: „Þá springur allt í loft upp aftur“ Réttarhöld í Reykholtsmáli halda áfram og djúpfölsunum fjölgar Ráðuneytið birtir útreikningana Andstæðingar segja að Áfram Ísland hafi úr allt að 300 milljónum að spila Hafi ekki hótað með keðjusög og að henda þolanda útbyrðis við Grænlandsstrendur Lag Gunnars og Davíðs hljómar þegar hringt er í borgina Óvissustigi í Öskju aflýst Dómsmálaráðherra valdi Ásgerði í Hæstarétt Grunuðum þjófum vísað úr landi og meinuð endurkoma í 7 ár Áfram Ísland vísar fullyrðingum Kristrúnar á bug Heiðrún Lind á toppnum hjá hagsmunasamtökum Kvikuhlaup frá Svartsengi enn líklegasta sviðsmyndin Tíu af tuttugu efstu embættismönnunum hjá orkufyrirtæki Hafi aldrei farið í Reykholt Sjá meira