Veigar Páll: Þetta var algjört óviljaverk Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 25. júní 2013 18:35 Mynd/Valli
Veigar Páll Gunnarsson, leikmaður Stjörnunnar, hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem hann biður leikmann Þórs afsökunar á því að hafa gefið honum olnbogaskot í leik liðanna á sunnudag. Hann segir þó um óviljaverk hafi verið að ræða en málið var tekið til umfjöllunar í Pepsi-mörkunum í gærkvöldi. Veigar Páll baðst einnig afsökunar á atviki sem átti sér stað eftir leik, sem og ummælum sínum í viðtölum við fjölmiðla en þar gerði hann lítið úr liði Þórs. Veigar var í dag dæmdur í tveggja leikja bann vegna rauða spjaldsins sem hann fékk. Yfirlýsing Veigars í heild sinni: „Undirritaður vill koma eftirfarandi á framfæri varðandi atvik í leik Stjörnunnar og Þórs og ummæli mín eftir leik, vegna umfjöllunar fjölmiðla um hvort tveggja. Um algert óviljaverk var að ræða þegar ég gaf leikmanni Þórs olnbogaskot. Það var aldrei ætlun mín að meiða eða reyna að meiða viðkomandi leikmann. Þannig hef ég aldrei leikið knattspyrnu. Hlutaðeigandi leikmaður er því hér með beðinn velvirðingar á atvikinu. Ég bið stuðningsmenn Stjörnunnar, félaga mína í liðinu og alla knattspyrnuáhugamenn afsökunar á atviki eftir að mér var vísað af velli. Loks bið ég Þórsara og alla knattspyrnuáhugamenn afsökunar á ódrengilegum ummælum mínum eftir leikinn þar sem ég gerði lítið úr andstæðingum okkar. Þau ummæli lét ég falla í hita leiksins og átti að vita betur. Ég mun ekki tjá mig frekar um þessi mál. Með knattspyrnukveðju, Veigar Páll Gunnarsson“
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Dagskráin í dag: Risaleikur á Anfield og tímamót í Formúlu 1 Sport Hlaut heilahristing og er enn með hausverk en aganefnd gaf grænt ljós Sport Hamilton fremstur í fyrsta sinn í rúm þrjú ár Formúla 1 Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti Félag Örnu og Fanneyjar gat ekki borgað laun Fótbolti Grealish í agabanni hjá Everton Enski boltinn Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Fleiri fréttir Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Sjá meira