Árituð treyja Ronaldos boðin upp í kvöld 12. desember 2013 10:00 Þær Þuríður, Árný og Matthildur hafa haft í nógu að snúast við skipulagningu hátíðarinnar. Fréttablaðið/Vilhelm „
Við munum bjóða upp treyju áritaða af Cristiano Ronaldo, málverk eftir Sylvíu/Love Punk og Theódóru Loftsdóttur, treyju áritaða af knattspyrnuliði Reading, fatnað eftir íslenska hönnuði auk ýmissa gullmola sem við fundum í fatagámum Rauða krossins,“ segir Þuríður Ragna Jóhannesdóttir, ein af þremur konum sem skipuleggja Hönnun & House maraþon, sem er styrktarsöfnun fyrir Rauða krossinn. „Við höfum fundið ótrúlegustu hluti í þessum gámum, meðal annars Karl Lagerfeld-jakka,“ bætir Þuríður við. Hönnun & House maraþonið hest klukkan 12 í dag og fer hátíðin fram í Gamla bíói. „Þetta verður rosalega spennandi. Við erum með mikinn fjölda hönnuða sem munu selja verkin sín, við verðum með fatamarkað, uppboð og svo auðvitað hústónlist í þrettán klukkutíma í þakíbúð Gamla bíós,“ segir Þuríður. Auk hennar skipuleggja þær Árný Björk Sigurðardóttir og Matthildur Sunna Þorláksdóttir hátíðina. Allur ágóði af hátíðinni rennur til jólaúthlutunar Rauða kross Íslands. „Við gerum þetta algjörlega í sjálfboðavinnu en þetta hefur verið þess virði. Þetta er annað árið sem við höldum svona hátíð. Í fyrra var þetta miklu smærra í sniðum. Í ár ákváðum við að stækka við okkur og byrjuðum að skipuleggja í júní. Við höfum verið algjörlega á haus undanfarna tvo mánuði, en þetta hefur verið rosalega gefandi,“ útskýrir Þuríður. Meðal hönnuða og verslana sem styðja við hátíðina eru: Ella, Forynja, Einvera, Arfleið, Volcap, Helicopter, Lín Design og Stjörnubörn, Dýrka, Gullkúnst Helgu, Nostalgía og Spútník. „Síðan verðum við með tískusýningu og uppboð um kvöldið og mun DJ Margeir sjá um tónlistina. Það hefst klukkan 20 og stendur til 23. Elín Ey, Þórunn Antonía, Friðrika Hjördís Geirsdóttir og fleiri yndislegar konur munu sýna fötin sem fara á uppboð. Þær hafa sjálfar lýst yfir áhuga á að kaupa þær flíkur sem þær sýna, þannig að það er hörð samkeppni um þær vörur sem fara á uppboðið,“ segir Þuríður. Hátíðin hefst á svokallaðri Lunchbeat-skemmtun í hádeginu og mun DJ Bensol stýra tónlistinni. Tólf aðrir hústónlistarmenn munu kom fram í Gamla bíói. Hönnuðirnir Ólöf Rut Stefánsdóttir og Hjörtur Matthías Skúlason munu vera með táknrænan gjörning á milli 12 og 18. Gestir geta lagt hönd á plóg í gjörningnum sem mun endurspegla á huglægan hátt starf Rauða krossins. Uppboðið hefst svo klukkan 20 um kvöldið. Hönnuðir munu selja vörur á göngum Gamla bíós allan daginn og verður fatamarkaður í kjallaranum.
Mest lesið Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Lífið Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Lífið Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Lífið Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Lífið Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Lífið „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Lífið Joanna Pettet er látin Bíó og sjónvarp Niðurgangur, æla og nóg af pungspörkum Gagnrýni Björk og Yara nýtt par Lífið Adda og Alfreð eignuðust dreng Lífið Fleiri fréttir Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Sjá meira