Dagatal kvenheimspekinga gefið út Ugla Egilsdóttir skrifar 12. desember 2013 11:00 Sigríður Þorgeirsdóttir er prófessor í heimspeki. Fréttablaðið/Valli
Sigríður Þorgeirsdóttir, prófessor í heimspeki við Háskóla Íslands, hefur gefið út dagatal tileinkað kvenheimspekingum. Dagatalið nefnist Dagbók 2014: Árið með heimspekingum. „Á annarri síðu hverrar opnu er dagatal vikunnar. Á hinni er lýsing á kvenheimspekingum úr sögu og samtíð,“ segir Sigríður. „Þetta er í senn gagnleg bók og svo miðlar hún fróðleik.“ Heimspekin hefur verið karlhverf grein að mati Sigríðar. „Rannsóknir síðustu áratuga hafa sýnt fram á að fleiri konur en áður var talið lögðu stund á heimspeki alveg frá upphafi. Þær hafa „gleymst“ og þeirra heimspeki sjaldan virt eða kennd. Þessu þarf að breyta,“ segir Sigríður. „Saga heimspeki þessara kvenna birtir öðruvísi heimspekisögu. Þeirra sýn á heiminn er svolítið öðruvísi. Hún fer oft á skjön við ráðandi strauma í heimspekisögunni. Við getum lært mikið af þeim.“ Í dagatalinu er fjallað um heimspekinga frá ýmsum tímaskeiðum. „Þar er til dæmis að finna umfjöllun um Christine af Pizan. Hún var uppi á fjórtándu og fimmtándu öld og hún skrifaði bók sem heitir Kvennaborgin. Í bókinni lýsir hún ímyndaðri borg þar sem fyrirfinnst ekki kvenfyrirlitning. Hún skrifaði bókina til að andæfa kvenfyrirlitningu í víðlesinni miðaldabók sem hét Skáldsagan um rósina, sem er ein allsherjar lýsing á því hversu vitlausar og siðlausar konur eru.“ Sigríður telur að þessar konur og sýn þeirra á heiminn eigi mikilvægt erindi við samtímann. „Þarna er að finna róttækar kenningar allt frá fornöld til samtímans.“ Allur ágóði af dagatalinu rennur til styrktar doktorsnemum í heimspeki.
Mest lesið Júnía Lín komin í milljónaklúbbinn Lífið Skilur meðvirkni eftir í fortíðinni Tónlist Tvö ár af ást hjá Charlie og Laufeyju Lífið „Minnstur aldursmunur á okkur af öllum pörum“ Lífið Innflytjendamálin eru fíllinn í stofunni Lífið Hailey Bieber slær í gegn á þvengnum Tíska og hönnun „Eins nakin og ég kemst upp með“ Tíska og hönnun Slíðruðu sverðin á árshátíð borgarstjórnar Lífið Fjölmenni í Tene-afmæli Gurrýjar en enga Sólrúnu Diego að sjá Lífið Rugluðust á Laufeyju og „Megan“ Tónlist Fleiri fréttir Innflytjendamálin eru fíllinn í stofunni Júnía Lín komin í milljónaklúbbinn Skóli við rætur Vatnajökuls Faðir Dilberts allur Tvö ár af ást hjá Charlie og Laufeyju Slíðruðu sverðin á árshátíð borgarstjórnar Diddy selur svörtu einkaþotuna Gummi Tóta og Guðbjörg eiga von á öðru barni Ragnheiður fékk heilablóðfall á Spáni „Hvaða rugl er þetta?“ „Besti tími lífs míns hingað til“ Spá Ísrael sigri marga mánuði fram í tímann „Minnstur aldursmunur á okkur af öllum pörum“ Fannar og Jói böðuðu hvor annan Fjölmenni í Tene-afmæli Gurrýjar en enga Sólrúnu Diego að sjá „Litlu kóngarnir“ sjaldan verið heitari Þessi nældu sér í verðlaun á Golden Globe „Á Íslandi eru konur hvattar til að dreyma og vera í forystu“ Stjörnulífið: Ár gellunnar Hús Björns og Hafdísar það dýrasta sem hefur verið selt Fresta tökum á Love Island All Stars Finnur fyrsti óperustjórinn Þegar miðborgin stóð í ljósum logum Sjá Jón Kára sem barn með óendanlega möguleika Krakkatía vikunnar: Borgarstjóri, Stubbarnir og handbolti Bob Weir látinn Stóru spurningunni um dularfullt slys enn ósvarað Minnast Magnúsar Eiríkssonar: „Góða ferð, elsku vinur“ Fréttatía vikunnar: Björk, EM í handbolta og Alvotech RÚV hættir við Söngvakeppnina Sjá meira