Sýna dans í Hamborg Bjarki Ármannsson skrifar 12. desember 2013 10:15 Erna Ómarsdóttir og Valdimar Jóhannsson stuttu áður en barnið kom í heiminn. mynd/magnús andersen
Sviðslista- og dansflokkurinn Shalala setur um þessar mundir upp verkið Transaquania – Into Thin Air í hinu virta leikhúsi Kampnagel í Hamborg. Með því lýkur hópurinn mánaðarlöngu sýningarferðalagi um Evrópu. „Það heppnaðist mjög vel,“ segir Erna Ómarsdóttir, annar stjórnenda Shalala. „Við ferðuðumst meðal annars til nokkurra borga í Belgíu, Bordeaux í Frakklandi og Drezden.“ Hópurinn kom einnig við á sviðslistahátíðunum Kunstenfestival des Arts í Brussel og Der Steirischer Herbst í Graz. Þar flutti Shalala verkið H, an Incident í samstarfi við belgíska listamanninn Kris Verdonck. Shalala er dansflokkur þeirra Ernu og Valdimars Jóhannssonar, eiginmanns hennar, og sýna þau nær algöngu erlendis. „Ég er búin að túra með mín verk síðan um 2002 og við stofnuðum Shalala til að halda utan um þessi verk,“ segir Erna. „Hópurinn helst uppi á því að ferðast.“ Erna er ekki með kollegum sínum í Hamborg um þessar mundir, en hún sneri aftur úr ferðalaginu eftir þrjár vikur til að annast fjögurra mánaða barn þeirra Valdimars. Er hún búin að vera í netsambandi við hópinn þessa vikuna og fylgist að sögn vel með öllu. „Það er miklu meira stressandi að sitja eftir heima,“ segir hún og hlær. Frumsýning á þriðjudagskvöld gekk þó mjög vel, en Erna segir átta hundruð manna áhorfendaskarann hafa fagnað gríðarlega í lok sýningar. „Þannig að maður vonar það besta fyrir næstu sýningu.“ Næst á döfinni hjá hópnum er uppsetning verksins To the Bone í Kassanum í Þjóðleikhúsinu í janúar. Það verk flutti Shalala á Reykjavík Dance Festival í ágúst síðastliðnum og komust að sögn Ernu færri að en vildu.
Mest lesið Hræðilegir dagar í Partylandi Lífið samstarf Fyrsta myndbandi Tár leikstýrt af Baldvin Z Tónlist Úlfurinn át þá alla Gagnrýni Hvað veistu um… pitsur? Lífið Sjálfið okkar: Hvers vegna kaupum við nammi við kassann síðdegis? Áskorun Hilmir Snær svarar gagnrýnendum Menning Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Lífið Gengst við dulnefninu en vill samt ekki kannast við það Menning Kaffi Flauel er nýtt kaffihús í Árbæ Lífið samstarf Sturluð skvísulæti í stórafmæli Tíska og hönnun Fleiri fréttir Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Linda Dröfn og Tótla sjóðheitt par „Ég var alveg skelfingu lostinn“ Vaknaði við öskur móður sinnar og vissi strax hvað hafði gerst Krakkatía vikunnar: Illmenni, bofs og Einar Áskell ADHD-ið geri Jón Gnarr fullkominn fyrir opið samband Blóð og hryllingur í grænmetisdeildinni Draugar og ófreskjur taka yfir Húsdýragarðinn Smáhestar flúðu úr verslunarmiðstöð Skrifborð Megasar eins og hjá skurðlækni Þurfti að vara syni sína við eftir umfjöllun um meintan eltihrelli Fór á skeljarnar á toppi hæsta tinds Fréttatía vikunnar: MS, þungunarpróf og glaumgosi Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Top Gun- og Alien-leikari látinn Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Sjá meira