Stórtónleikar í kvöld: Takmörkuð umferð og hugsanlega rigning 31. ágúst 2013 13:47 Hljómsveitin á tónleikum sínum á Hróaskeldu fyrr í sumar.
Stórtónleikar hljómsveitarinnar Of Monsters and Men fara fram á túninu við Vífilsstaði í kvöld. Það er ókeypis á tónleikana sem verða úti, og spáin er þokkaleg, þó gestir megi búast við smá rigningu seint í kvöld samkvæmt veðurspá. Dagskráin er ekki af verri endanum en hér má sjá hana: Uppfært 14:00: Ahugið að dagskráin hefst klukkan sex, en ekki klukkan fimm. Þetta kom fram á facebook-síðu hljómsveitarinnar skömmu eftir hádegi. Dagskrá: 17:00 Túnið opnar 18:00 Hide Your Kids 18:30 Moses Hightower 19:30 Mugison 20:40 Of Monsters and Men 22:00 Lok. Mikilvægt er að halda því til haga að umferð í kringum tónleikasvæðið verður bönnuð. Aðalbílastæði tónleikanna verður á Kauptúnssvæðinu í Garðabæ þar sem meðal annars IKEA er til húsa. Frá Kauptúnssvæðinu býður Garðabær upp á fríar ferðir með Strætó til og frá Vífilsstaðatúni. Strætóferðin tekur um 5 mínútur á tónleikasvæðið. Á þessu korti má sjá strætóleiðir og götulokanir.Frá skiptistöð Strætó í Mjóddinni býður Garðabær einnig upp á fríar ferðir með Strætó til og frá Vífilsstaðatúni. Strætóferðin tekur um 10 mínútur. Frá Ásgarði og um Bæjarbraut býður Garðabær upp á FRÍAR ferðir með Strætó til og frá Vífilsstaðatúni. Einnig verður boðið upp á strætó frá Álftanesi (Breiðumýri) á klukkustunda fresti, farið á heila tímanum frá Álftanesi og á hálfa tímanum tilbaka. Tónleikagestir hafa einnig aðgang að bílastæðum í Molduhrauni í Garðabæ, þar sem meðal annars Marel er til húsa. Ekki verða ferðir með Strætó þaðan og fólki bent á að fara gönguleiðina yfir hraunið og undir Reykjanesbrautina að Vífilsstaðatúni. Allar strætóferðir hefjast kl. 17:00 og standa yfir allan tímann sem dagskrá er í gangi og eftir tónleika. Garðbæingar eru sérstaklega hvattir til að nýta sér gönguleiðirnar úr Garðabæ yfir á Vífilsstaðatún. Bílastæði fyrir fatlaða verða við Vífilsstaði. Engin almenn bílaumferð verður leyfð í kringum Vífilsstaði. Stjarnan, Ungmennafélag Álftaness, Skátafélagið Vífill og Skátafélagið Svanir verð með sölutjöld á staðnum. Einnig verða seldir sérhannaðir bolir til styrktar Barnaspítala Hringsins á staðnum. Hjálparsveit skáta í Garðabæ sér um gæslu á staðnum. Athugið að samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni verður Reykjanesbraut lokuð við Kauptún á milli kl. 19.00 til kl. 23.00 á meðan tónleikarnir fara fram.Hér má finna upplýsingar um umferð og strætó sem og hér.
Mest lesið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Innlent Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Innlent Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Innlent Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Innlent Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Innlent Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu Innlent Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Erlent Að minnsta kosti fimmtán létust í árásum Rússa á Úkraínu Erlent CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Innlent „Vélin að bila og hún stingur upp á að við skiptum um áklæði“ Innlent Fleiri fréttir Líkamsárás, húsbrot og eignaspjöll Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Fagnar fjölgun skráninga í Þjóðkirkjuna Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Fleiri andvígir aðild nú en í fyrra Ingimar er bæjarstjóraefni D-listans í í Hveragerði Bækurnar of leiðinlegar og forritaði stærðfræðitölvuleik „Vélin að bila og hún stingur upp á að við skiptum um áklæði“ Lögðu hald á um tug lítra fíkniefna Æfir kennarar og varað við verðstýringu Mótorinn í Herjólfi þarf til útlanda Margir sátu hjá þegar launin voru hækkuð Halla Bergþóra nýr ríkislögreglustjóri „Nú hef ég auðvitað ekkert á móti fólki frá Nígeríu“ Dómur yfir Helga Bjarti: Fara þyrfti varlega í að draga ályktanir út frá framburði drengsins Rannsóknin á lokametrunum Fjórir landsréttardómarar vilja taka skrefið í Hæstarétt Forsetar Íslands og Slóveníu ræða leiðtogahlutverk í breyttum heimi Segir forsætisráðuneytið misnotað í þágu sveitarstjórnarkosninga Sjálfsmark með „sjúklega samfylkingarlegu“ kjötvörubanni Framkoman laði ekki lækna að Landspítalanum Ók á móti umferð í Hvalfjarðargöng með lögregluna á hælunum Helgi Bjartur dæmdur í tólf mánaða fangelsi Eimskip líta smyglið mjög alvarlegum augum „Já, ég er dálítið reiður“ Sjá meira