Of feitum börnum fækkar 3. janúar 2013 08:00 Mynd/Getty
Hlutfall of þungra eða of feitra íslenskra barna hefur ýmist staðið í stað eða lækkað síðustu níu til tíu ár. Aftur á móti jókst hlutfall barna yfir kjörþyngd áratugina á undan. Þetta eru niðurstöður tveggja nýrra rannsókna er varða þyngd barna hér á landi. Önnur snýr að líkamsþyngdarstuðli íslenskra barna sem eru yfir kjörþyngd og hvernig skólahjúkrunarfræðingar sinna þeim. Hin snýr að tengslum mataræðis á fyrsta aldursári við líkamsþyngd barnanna þegar þau verða sex ára. Samkvæmt þeirri fyrrnefndu reyndust um 22,5 prósent barna af báðum kynjum vera yfir kjörþyngd árið 2008. Fjöldinn hafði haldist stöðugur undanfarin níu ár þar á undan, þó tíðni of feitra barna hafi sveiflast nokkuð, er fram kemur í inngangi að kynningu rannsóknarinnar. Þá höfðu rúmlega 60 prósent skólahjúkrunarfræðinga beitt sér vegna ofþyngdar barna, annaðhvort með viðtölum við börnin sjálf eða samtali við foreldra þeirra. Gagna var aflað úr rafrænum gagnagrunni heilsuverndar skólabarna á höfuðborgarsvæðinu skólaárin 2003 og 2004 til 2011 og 2012. Einnig var sendur út spurningalisti til skólahjúkrunarfræðinga. Í hinni rannsókninni er sýnt fram á hugsanleg tengsl á milli prótínneyslu ungabarna og þyngdar þeirra á sjötta aldursári. Eins og áður sagði hefur of þungum sex ára börnum fækkað síðustu tíu ár, en samkvæmt niðurstöðum rannsóknarinnar bendir það til þess að lægri prótínneysla, vegna minni neyslu á venjulegri kúamjólk, gæti að hluta til skýrt þann mun. Niðurstöður rannsóknanna tveggja, sem og fjölda annarra, verða kynntar á stórri ráðstefnu í líf- og heilbrigðisvísindum í Háskóla Íslands í dag og á morgun.- sv
Mest lesið Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Innlent Þorgerður beygði af í Bítinu Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Erlent Nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Innlent Voru á Íslandi þegar maðurinn var drepinn Innlent Mættu í skólann og beittu nemanda ofbeldi Innlent „Verkinu er haldið í gíslingu“ Innlent Uppsagnirnar hafi komið eins og reiðarslag Innlent Haraldur V Noregskonungur er látinn Erlent Fleiri fréttir Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Hnífjafnt í síðustu könnuninni Umræðan hafi verið ruglingsleg og á lágu plani Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Símtöl almennt málefnaleg en dónaskapur inni á milli Aldrei komið í þvílíkt fjölmenni þar sem er svona mikil þögn Jákvæð „sjálfsmyndarkrísa“ í Brussel Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Líflátshótanir, þandar taugar og bein útsending frá norsku konungshöllinni Voru á Íslandi þegar maðurinn var drepinn Missti öxi sem hann hafði inni á sér og var handtekinn Uppsagnirnar hafi komið eins og reiðarslag Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Brynjar tekur við af Líf Jón Hrói nýr sveitarstjóri í Langanesbyggð Efast um að skylt verði að hefja aðildarviðræður þótt já verði ofan á Armslengd eigi sérstaklega vel við um Fjölmiðlanefnd Inga segir já Örfáir töldu Ingu hafa staðið sig best Tuttugu prósent búin að greiða atkvæði „Mér fannst ég þekkja hann strax og ég hitti hann í fyrsta sinn“ Bíða enn niðurstöðu varðandi vatnslögnina Brotist inn í Hygge á Barónsstíg Vélstjóra sem átti að sigla Bandero meinuð innganga Tuttugu prósent þegar greitt atkvæði og andlát Noregskonungs „Verkinu er haldið í gíslingu“ Reyndi að smygla fíkniefnum í vínflöskum Nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Þorgerður beygði af í Bítinu Segir Katrínu sparka í konuna sína Sjá meira