Endurfundir Madonnu og Seans Penn Ólöf Skaftadóttir skrifar 13. desember 2013 09:00 Myndin sem gaf orðrómi um endurfundi byr undir báða vængi er tekin þann 24. september síðastliðinn, þegar Madonna og Steven Klein héldu secretprojectrevolution-veislu í Gagosian-galleríinu í New York. AFP/NordicPhotos
Orðrómur þess efnis að Sean Penn og Madonna séu byrjuð saman á ný flýgur nú fjöllum hærra vestanhafs, síðan mynd birtist af parinu í veislu í New York-borg í september. Fyrir tveimur vikum fóru þau svo saman til Haítí til að sinna góðgerðarmálum, en Sean Penn hefur verið atkvæðamikill í góðgerðarstarfsemi þar í landi. Með í för var 13 ára sonur Madonnu og fyrrverandi eiginmanns hennar, leikstjórans Guy Ritchie, og virtist fara vel á með þeim. Rocco hlóð meðal annars upp mynd af þeim félögum á samfélagsmiðilinn Instagram, sem sjá má hér að neðan. Myndin hlaut gríðarlega athygli, en tæplega fjögur þúsund manns hafa þegar látið sér líka við myndina og sumir gengið svo langt að skilja eftir athugasemdir þar sem þeir hvetja Madonnu til að giftast Penn á ný.Madonna og Sean Penn koma af æfingu á leikritinu Goose and Tom Tom í ágúst 1986.AFP/NordicPhotosMadonna, sem er 55 ára gömul og Sean, sem er 53 ára, gengu í hjónaband árið 1985 en skildu fjórum árum síðar. Árið 1987 var greint frá því í fjölmiðlum að Madonna hefði verið lögð inn á spítala eftir að Sean hafði lamið hana í andlitið með hafnaboltakylfu. Ári seinna var Madonna tekin í skýrslutöku hjá lögreglunni í Malibu eftir að Penn hafði bundið hana við stól á heimili sínu, í níu klukkutíma. Þrátt fyrir allt hafa þau alltaf haldið sambandi og verið náin. Í sumar lét Debi Mazar, leikkona og góð vinkona Madonnu, hafa það eftir sér að Sean væri ástin í lífi vinkonu sinnar. Penn skildi við eiginkonu sína, Robin Wright Penn, árið 2010 og Madonna skildi við eiginmanninn Guy Ritchie árið 2008.
Mest lesið Hræðilegir dagar í Partylandi Lífið samstarf Hilmir Snær svarar gagnrýnendum Menning Hvað veistu um… pitsur? Lífið Sturluð skvísulæti í stórafmæli Tíska og hönnun Ómetanlegt fyrir samkynhneigðan strák í skápnum Bíó og sjónvarp Gengst við dulnefninu en vill samt ekki kannast við það Menning Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Lífið Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Lífið Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Lífið Chris Brown á skilorði Lífið Fleiri fréttir Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Linda Dröfn og Tótla sjóðheitt par „Ég var alveg skelfingu lostinn“ Vaknaði við öskur móður sinnar og vissi strax hvað hafði gerst Krakkatía vikunnar: Illmenni, bofs og Einar Áskell ADHD-ið geri Jón Gnarr fullkominn fyrir opið samband Blóð og hryllingur í grænmetisdeildinni Draugar og ófreskjur taka yfir Húsdýragarðinn Smáhestar flúðu úr verslunarmiðstöð Skrifborð Megasar eins og hjá skurðlækni Þurfti að vara syni sína við eftir umfjöllun um meintan eltihrelli Fór á skeljarnar á toppi hæsta tinds Fréttatía vikunnar: MS, þungunarpróf og glaumgosi Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Top Gun- og Alien-leikari látinn Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Sjá meira