Arion banki vill boð Einars skriflegt Haukur Viðar Alfreðsson skrifar 13. desember 2013 19:23 Einar segist hafa sagt við bankann að hann hefði fengið frábær viðbrögð við hugmyndinni.
Einar Kárason rithöfundur fékk símtal frá Arion banka vegna tilboðs sem hann gerði bankanum um mánaðarlegar greiðslur sem hann þarf að greiða. Bankinn býður Einari að láta árlega endurgreiðslu (fimm krónur af hverjum þúsund) af verslun til tiltekinna aðila renna til Mæðrastyrksnefndar. Á móti bauð Einar að mánaðarleg greiðsla hans vegna lána, greiðslukorts og fleira yrði einnig látin renna til Mæðrastyrksnefndar. „Hafni bankinn þessari fullkomlega sjálfsögðu tillögu er hann augljóslega kominn í alvarlega siðferðisklemmu, treystir sér ekki til að sýna það örlæti sem hann ætlast til af öðrum,“ sagði Einar á Facebook-síðu sinni í dag, og nú hefur bankinn haft samband. „Ég sagði frá þessu hér á Facebook og lofaði að segja frá framhaldinu, og get nú sagt þau tíðindi að maður frá bankanum hafði samband, vildi að ég sendi þetta tilboð skriflega til sín, og ég gat ekki skilið okkar samtal á annan hátt en að þeir væru í alvöru að hugleiða þetta boð,“ skrifar Einar og segir spjallið hafa verið á jákvæðum nótum. Hann segist hafa sagt við manninn að hann hefði fengið frábær viðbrögð við hugmyndinni, mörg hundruð „læk“ og deilingar, og að nokkrir fjölmiðlar hefðu hringt. „Hann sagði þá reyndar: „Já það er alltaf vinsælt að sparka í bankann,“ en ég sagðist alls ekki hafa hugsað þetta þannig. Ekki frekar en að mér hafi fundist þeir sparka í mig með sínu tilboði, enda hefur samband mitt við Arionbanka (og öll nöfnin sem hann hét á undan) verið vinsamlegt og hnökralaust. Ég held það geti komið eitthvað jákvætt og spennandi út úr þessu,“ skrifar Einar.
Tengdar fréttir Einar Kárason setur Arion banka í siðferðisklemmu Hefur gert bankanum sanngjarnt tilboð. 13. desember 2013 15:18 Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda Innlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Fleiri fréttir Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Sjá meira
Einar Kárason setur Arion banka í siðferðisklemmu Hefur gert bankanum sanngjarnt tilboð. 13. desember 2013 15:18