Fyrsta kaffihúsið í sögu bæjarins Gunnar Leó Pálsson skrifar 7. desember 2013 10:00 Dagný Magnúsdóttir, eigandi eina kaffihússins í Þorlákshöfn, Handa í Höfn. mynd/hjalti vigfússon „
Þetta er fyrsta kaffihúsið í Þorlákshöfn og ég myndi segja að þetta sé rómantískasta kaffihús á Íslandi,“ segir Dagný Magnúsdóttir glerlistakona og eigandi kaffihússins og listasmiðjunnar Handa í Höfn. Hún hefur starfrækt listasmiðju í um þrjú ár og gekk sú starfsemi svo vel að út frá henni varð kaffihúsið til. „Kveikjan að kaffihúsinu var að ég vildi þjóna viðskiptavinum mínum betur,“ útskýrir Dagný. Aðdragandi opnunarinnar var þó langur en Dagný stundaði nám á sóknarbraut Nýsköpunarmiðstöðvar fyrir nokkrum árum og nýtti sér þá hugmyndina að kaffihúsi samhliða Höndum í Höfn við nám- og verkefnavinnuna þar en Nýsköpunarmiðstöðin hvatti hana til dáða við framkvæmdina. Einnig hefur hún sótt ýmis námskeið varðandi markaðs- og kynningarmál sem hafa komið að góðum notum við þessa vinnu. „Ég hef ávallt haft mikla ástríðu fyrir matargerð og bakstri.“ Dagný tók þátt í sjónvarpsþættinum Masterchef síðastliðið haust og setti sér það markmið að ef hún næði upp í 25 manna úrtökuhóp léti hún drauminn um kaffihús í Þorlákshöfn rætast. „Ég stóð við stóru orðin og lét slag standa.“ segir Dagný létt í lundu. Innviðir kaffihússins eiga það sameiginlegt að vera komnir til ára sinna en hafa fengið upplyftingu og nýtt hlutverk. Í Höndum í Höfn má meðal annars kaupa ýmsa glervöru og lífsstílstengdar matvörur frá Nicolas Vahé. „Ég notast við ösku úr Eyjafjallajökli og sand úr nálægri fjöru í glermunina mína.“ Dagný hefur mikinn metnað til matargerðar og leggur mikið upp úr því að nota ávallt úrvalshráefni. „Hráefnið kemur að mestu leyti beint frá býli og veitingarnar eru lagaðar frá grunni á staðnum.“ Þá hefur staðurinn einnig verið virkur í tónleikahaldi og hafa ýmsir listamenn komið þar fram að undanförnu. Hendur í Höfn er opið frá fimmtudegi til sunnudags en opið er fyrir hópa utan opnunartíma.Hendur í Höfn er eitt krúttlegasta og rómantískasta kaffihús landsins að sögn Dagnýjar.mynd/davíð þór guðlaugsson
Mest lesið Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Lífið Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Lífið Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Lífið Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Lífið Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Lífið „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Lífið Joanna Pettet er látin Bíó og sjónvarp Niðurgangur, æla og nóg af pungspörkum Gagnrýni Björk og Yara nýtt par Lífið Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta Lífið Fleiri fréttir Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Sjá meira