Jólatónar í Grafarvogi Gunnar Leó Pálsson skrifar 7. desember 2013 13:00 Kórstjórar Hilmar Örn Agnarsson, Margrét Pálmadóttir og Hákon Tumi Leifsson eiga öll sinn þátt í að gera jólatónleikana í Grafarvogskirkju að hátíðastund.
Efnt er til hátíðlegra og hugljúfra Jólatónleika í Grafarvogskirkju í dag. Áhersla er lögð á nýjabrum, fumsköpun og grósku nýrrar kynslóðar að sögn Hákonar Tuma Leifssonar, organista Grafarvogskirkju. Hann segir sérstaka gesti vera annars vegar dúóið Sigríði Thorlacius og Guðmund Óskar Guðsmundsson og hins vegar fimm manna hljómsveitina Ylju. „Þetta fólk er allt verðugir fulltrúar nýrrar kynslóðar listamanna í dægurtónlistinni,“ segir hann og lýsir því og efnisskránni nánar. „Sigríður og Guðmundur munu flytja lög af nýútkomnum jóladiski sínum sem heitir því vinalega nafni Jólakveðja. Diskurinn hefur að geyma lög eftir Guðmund Óskar og Bjarna Frímann Bjarnason. Ylja hefur farið víða um völl að undanförnu og fengið góðar undirtektir. Hún er órafmögnuð hljómsveit og á þessum tónleikum flytur hún einkum jólatengt efni.“ Þá koma fram þrír kórar kirkjunnar sem flytja ýmis jólalög, bæði innlend og erlend, og eiga án eftir að koma tónleikagestum í jólaskap, að sögn Hákonar. „Vox Populi er sönghópur sem fæst helst við gospel og létta tónist. Hann kemur fram við ýmis tilefni og nýtur leiðsagnar Hilmars Arnar Agnarssonar nú um stundir. Hann ætlar að flytja ýmis jólalög úr sjóði sínum. Stúlknakór Reykjavíkur í Grafarvogskirkju mun koma með glitrandi geisla æskufjörs inn á tónleikana. Hann var stofnaður af Margréti Pálmadóttur en er þjálfaður þessa mánuðina af Guðrúnu Árnýju Guðmundsdóttur. Í kórnum eru tæplega 40 krakkar sem allir búa í Grafarvoginum. Kórinn mun meðal annars flytja jólasyrpu eftir Mons Takle,“ lýsir Hákon Tumi sem sjálfur mun stjórna kór Grafarvogskirkju sem syngur jólalög í léttum anda. „Óhætt er að fullyrða að mikillar fjölbreytni gæti á þessum tónleikum,“ segir Hákon Tumi og tekur fram að miðaverði sé stillt í hóf því aðgangur kosti einungis 1.500 krónur.
Mest lesið Hræðilegir dagar í Partylandi Lífið samstarf Úlfurinn át þá alla Gagnrýni Hilmir Snær svarar gagnrýnendum Menning Hvað veistu um… pitsur? Lífið Sturluð skvísulæti í stórafmæli Tíska og hönnun Ómetanlegt fyrir samkynhneigðan strák í skápnum Bíó og sjónvarp Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Lífið Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Lífið Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Lífið Chris Brown á skilorði Lífið Fleiri fréttir Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Linda Dröfn og Tótla sjóðheitt par „Ég var alveg skelfingu lostinn“ Vaknaði við öskur móður sinnar og vissi strax hvað hafði gerst Krakkatía vikunnar: Illmenni, bofs og Einar Áskell ADHD-ið geri Jón Gnarr fullkominn fyrir opið samband Blóð og hryllingur í grænmetisdeildinni Draugar og ófreskjur taka yfir Húsdýragarðinn Smáhestar flúðu úr verslunarmiðstöð Skrifborð Megasar eins og hjá skurðlækni Þurfti að vara syni sína við eftir umfjöllun um meintan eltihrelli Fór á skeljarnar á toppi hæsta tinds Fréttatía vikunnar: MS, þungunarpróf og glaumgosi Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Top Gun- og Alien-leikari látinn Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Sjá meira