Gísli Marteinn hlakkar til að sjá Maður að mínu skapi Jakob Bjarnar skrifar 16. september 2013 14:05 Meira en lítil líkindi þykja með aðalpersónu verksins og Hannesi Hólmsteini. Þjóðleikhúsið
Nýtt verk eftir Braga Ólafsson í leikstjórn Stefáns Jónssonar, Maður að mínu skapi, var frumsýnt í Þjóðleikhúsinu um helgina. Fáir velkjast í vafa um að þar fær hópur innan Sjálfstæðisflokksins á baukinn. Aðalpersónan Guðgeir Vagn (Eggert Þorleifsson) þykir minna meira en lítið á Hannes Hólmstein Gissurarson prófessor, og staðhæfir Símon Birgisson það í leikdómi í DV í dag; "... er skopmynd af Hannesi Hólmsteini Gissurarsyni, einum nánasta ráðgjafa Davíðs Oddssonar fyrrverandi forsætisráðherra og oft nefndur einn af hugmyndafræðingum hinnar (sér)íslensku nýfrjálshyggju. Líkt og Hannes þá hefur Guðgeir í smíði bók, samansafn af fleygum setningum og tilvitnunum (bók Hannesar kom út árið 2010 og kallaðist Kjarni málsins)."Gísli Marteinn. Bragi er einn af hans uppáhalds.ValliGuðgeir er sakaður um ritstuld en svarar því til að hann steli ekki bókum heldur setji bara nafn sitt á þær. "Gefið er í skyn að bæði Guðgeir og Klemens séu skápahommar," en sér til aðstoðar hefur Guðgeir nemanda við HÍ sem á í mesta basli við að ljúka lokaritgerðinni, "lítur barnalega út og til að áhorfendur næðu örugglega tilvísuninni mætti hann með reiðhjólahjálm í síðustu senu fyrir hlé," skrifar Símon. Gísli Marteinn Baldursson sagðist í samtali við Vísi ekki geta tjáð sig um hvort þarna hafi verið farið yfir einhverjar línur sem viðeigandi mega heita þar sem hann hefði ekki séð sýninguna. "En, ég hef ekki trú á öðru en þetta sé alveg frábært. Þetta er Bragi Ólafsson og ég hlakka til að sjá þetta," segir Gísli Marteinn sem telur Braga til sinna eftirlætis höfunda.
Mest lesið Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Erlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Innlent Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Innlent Tók konu hálstaki sem söng með á söngleik Erlent Fleiri fréttir Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Sjá meira