Innlent

Vilja fá listaverkagjöf tölvuleikjarisans CCP

Garðar Örn Úlfarsson skrifar
Safnstjóri Listasafns Reykjavíkur hvetur borgina til að þiggja þetta verk Sigurðar Guðmundssonar að gjöf frá CCP.
Safnstjóri Listasafns Reykjavíkur hvetur borgina til að þiggja þetta verk Sigurðar Guðmundssonar að gjöf frá CCP. Mynd/Sigurður Guðmundsson
Útlit er nú fyrir að Reykjavíkurborg muni þiggja útilistaverkagjöf tölvuleikjaframleiðandans CCP.

Eins og fram hefur komið í Fréttablaðinu hafnaði borgin fyrstu hugmynd listamannsins Sigurðar Guðmundssonar að listaverki í boði CCP í tilefni tíu ára afmælis fyrirtækisins, sem framleiðir hinn gríðarlega vinsæla tölvuleik Eve-Online.

Nú hefur Sigurður lagt fram alveg nýja hugmynd; Heimar í heimi. Er þar um að ræða verk í granít, stál, steypu og ál sem hæst mun ná fimm metra hæð. Nöfn um fimm hundruð þúsund áskrifenda að Eve-Online verða letruð á verkið.

„Nöfnin eru ólæsileg og sjást aðeins með stækkunargleri enda prentuð í gráum lit á gráa álplötuna. Þessi ósýnilega „virtual“ þjóð, 500 þúsund manns sem lifa í EVE-heiminum, er velkominn hluti af verkinu fyrir mig þó að sjónrænt virki textinn eins og mynstur eða „grid“,“ útlistar Sigurður í skýringum á verkinu.

Fyrri hugmynd Sigurðar þótti Hafþóri Yngvasyni, safnstjóra Listasafns Reykjavíkur, hafa of sterka tilvísun í CCP. Áletruðu nöfnin mundu takmarka merkingu verksins og koma í veg fyrir að það stæði óháð hagsmunum einkafyrirtækis. Hafþór fagnar hins vegar nýja verkinu, sem hann segir ákjósanlega viðbót við myndlistarverk í borgarlandinu.

Sigurður Guðmundsson
„Öll form myndarinnar eru einföld og skýr og einkennast af festu og stöðugleika, sem er mikilvægt í almenningsrými þar sem ótengdir hlutir keppa um athyglina,“ segir í umsögn safnstjórans, sem hvetur borgaryfirvöld til að taka jákvætt í tillöguna og skoða hvort finna megi verkinu varanlegan stað við Vesturbugt í Reykjavíkurhöfn. Þar á svæðinu er CCP með höfuðstöðvar sínar.

„Verkið sé ég að engu leyti sem auglýsingu fyrir CCP enda var það engin ósk af þeirra hálfu. Það sem ég var beðinn um að gera var listaverk í tilefni tíu ára afmælis CCP,“ undirstrikar Sigurður í bréfi sínu.

Menningar- og ferðamál borgarinnar lýsti ánægju með verkið og nú hefur umhverfis- og skipulagsráð vísað því til umsagnar hjá skipulagsfulltrúa borgarinnar.

Að sögn Sigurðar er uppsetning verksins einföld og auðvelt að færa það til. „Sjálfur mun ég fylgjast með uppsetningunni og einnig kínverskur tæknimaður sem ráðleggur hvernig best sé að framkvæma uppsetninguna,“ segir Sigurður, sem sjálfur kveðst munu borga kostnaðinn við kínverska tækniráðgjafann.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×