Páll hlýtur fjölmiðlaverðlaun umhverfis- og auðlindarráðuneytisins 16. september 2013 14:59 Páll Steingrimsson kvikmyndagerðarmaður tekur við verðlaununum úr hendi Sigurðar Inga. Mynd/Valgarður
Páll Steingrímsson, kvikmyndagerðarmaður, hlaut i dag fjölmiðlaverðlaun umhverfis- og auðlindarráðuneytisins. Sigurður Ingi Jóhannsson, umhverfis- og aulindarráðherra, veitti verðlaunin í dag í tilefni af Degi íslenskrar náttúru. Við sama tækifæri veitti hann Vigdísi Finnbogadóttur Náttúruverndarviðurkenningu Sigríðar í Brattholti. Í rökstuðningi dómnefndar fjölmiðlaverðlauna segir meðal annars: „Heimildamyndir Páls Steingrímssonar skipta mörgum tugum frá Vestmannaeyjagosinu 1973 og fram á þennan dag. Megináhersla hans hefur verið á náttúrulífsmyndir, svo sem fuglasögurnar sem hann hefur fengist við hin síðustu ár, og áhrif manna á umhverfið. Starf Páls að fræðslu og vernd íslenskrar náttúru er langt og farsælt og hefur borið hróður hans og landsins um heimsbyggðina.“ Í rökstuðningi ráðherra vegna Náttúruverndarviðurkenningar Sigríðar í Brattholti segir meðal annars að Vigdís Finnbogadóttir hafi í gegnum tíðina lagt áherslu á landgræðslu, skógrækt og náttúruvernd. Einnig að hún hafi hvatt þjóð sína til að huga að uppeldislegu gildi þess að kenna börnum ræktun og að vernda náttúruna. Aðrir sem tilnefndir voru til fjölmiðlaverðlaunanna eru: Guðbjörg Gissurardóttir, ritstjóri tímaritsins Í boði náttúrunnar, fyrir vandað og fallegt tímarit sem m.a. hefur það að augnamiði að færa náttúruna nær fólki. Svavar Hávarðsson, blaðamaður á Fréttablaðinu, fyrir víðtæk og fjölbreytt skrif og fréttaskýringar um náttúruverndarmál.
Mest lesið Lúsmýið yrði alltaf verra en moskítóflugan Innlent Lögreglumál: Sátu fastir eftir að slökkt var á parísarhjólinu Innlent Hætta sölu til Japan: Hvalkjötið nýtt í framleiðslu fæðubótarefnis Innlent Viðreisn fjarlægir bænina af Facebook: „Við viljum ekki særa fólk“ Innlent „Þá er verið að hugsa um mögulegt viðbragð í neyðarástandi“ Innlent Aðalmeðferð hefst í Reykholtsmálinu Innlent Á sjötta tug björgunarsveitarfólks kom að björguninni Innlent Gerir upp hús hannað af Guðjóni Samúelssyni Innlent Nágranninn bjargaði Sævari sem missti næstum af almyrkvanum Innlent Úkraína gæti átt heimasmíðaðar eldflaugar innan nokkurra mánaða Erlent Fleiri fréttir Brotist inn í garnverslun í Árbæ Aðalmeðferð hefst í Reykholtsmálinu Hætta sölu til Japan: Hvalkjötið nýtt í framleiðslu fæðubótarefnis Lögreglumál: Sátu fastir eftir að slökkt var á parísarhjólinu Lúsmýið yrði alltaf verra en moskítóflugan Viðreisn fjarlægir bænina af Facebook: „Við viljum ekki særa fólk“ Gerir upp hús hannað af Guðjóni Samúelssyni Á sjötta tug björgunarsveitarfólks kom að björguninni Ekki fleiri tilkynnt innbrot síðan 2022 „Þá er verið að hugsa um mögulegt viðbragð í neyðarástandi“ Þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð út vegna veikinda Forystumenn láti stór orð falla sér og sínum málstað til framdráttar Þyrlan sótti slasaðan göngumann við Glym Spánverjum fjölgar þvert á þróunina Sigurgeir þurfti að hætta og var fluttur á sjúkrahús Það er jóker í spilinu Skoða hvort gerviaðgangar og grunsamlegar síður séu erlend öfl í dulbúningi Páll Magnússon tekur við af Kristjáni Nágranninn bjargaði Sævari sem missti næstum af almyrkvanum Brotist inn í Barnaloppuna Kristján Kristjánsson kveður Sprengisand Íbúi í Kænugarði um stríðið og áhyggjur lögreglu af erlendum áhrifum á ESB-kosningu Fortíð og framtíð Íslands í Evrópu á Sprengisandi Mundaði stólinn og lamdi gesti „Bara, hvað dettur gömlu fólki í hug að gera?“ Þrengja Reykjaveg og loka tveimur götum við Laugarnesskóla Fjöldi ökumanna á von á kæru Ísraelskir ferðamenn með ógnandi tilburði á palestínsku kaffihúsi Þyrlan sækir slasaðan mann á Hestfjall Miðflokksmenn helmingi líklegri til að segja já en Sjálfstæðismenn Sjá meira