Fólk hvatt til að vera ekki á ferðinni Erla Björg Gunnarsdóttir skrifar 16. september 2013 14:04 Björgunarsveitamenn hafa sinnt ótal útköllum síðasta sólarhringinn. Mynd/Vilhelm Gunnarsson
Ferðaaðstæður hafa spillst og geta versnað enn frekar næsta sólarhringinn. Fólk er hvatt til að vera ekki á ferðinni nema brýna nauðsyn beri til. Þetta kemur fram í tilkynningu Slysavarnafélagsins Landsbjörg. Síðastliðinn sólarhring hafa björgunarsveitir aðstoðað ferðalanga um allt land í kjölfar veðurofsa og enn spáir Veðurstofan slæmu veðri. „Það hefur verið töluvert mikið af fokútköllum ásamt aðstoð við fólk í föstum bílum uppi um allar heiðar og hálendi. Útköllin hafa annars verið mjög dreifð um landið,“ segir Ólöf Snæhólm Baldursdóttir upplýsingafulltrúi SL. Ólöf segir umhugsunarefni hve margir af þeim sem festa bíla sína eru erlendir ferðamenn. „Þeir þekkja ekki aðstæður, fá ekki skilaboð um slæma veðurspá og eru á bílum sem henta ekki til vetraraksturs. Ferðaþjónustuaðilar verða að vera duglegri að koma upplýsingum til ferðamanna,“ segir Ólöf.Veðrið var hrikalegt austan við Snæfell þar sem vinnuhópur ÍAV er með vinnubúðir.Mynd/Kári Viðar RúnarssonKári Viðar Rúnarsson, verkstjóri hjá Íslenskum aðalverktökum, og hópur hans eru að vinna að verkefni fyrir Landsvirkjun austan við Snæfell. Þeir börðust við óveðrið í morgun en þeir vinna í 800 metra hæð yfir sjávarmáli. Þegar ljósavélin hætti að virka þurftu þeir að leggja niður vinnu og leita skjóls í Laugarfellsskála. Þar eru þeir nú í góðu yfirlæti á meðan veðrið gengur yfir. „Það tók okkur tvo og hálfan tíma að koma okkur niður í skálann úr vinnubúðunum. Undir venjulegum kringumstæðum tekur það 10-15 mínútur,“ segir Kári en hann er vanur björgunarsveitarmaður og því alvanur svona aðstæðum.
Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Fleiri fréttir „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Sjá meira