Taldi sig ekki lengur njóta trausts Freyr Bjarnason skrifar 18. desember 2013 07:00 Páll Magnússon sagði upp sem útvarpsstjóri í gær. Hann þakkaði öllum þeim sem hann hefur unnið með á RÚV síðustu átta árin. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Páll Magnússon sagði upp störfum sem útvarpsstjóri í gær. Í tilkynningu sem hann sendi frá sér sagði hann ástæðuna vera þá að hann nyti ekki lengur trausts stjórnarinnar. Páll hafði verið gagnrýndur eftir að hann sagði upp tugum manns hjá RÚV á dögunum í hagræðingaraðgerðum vegna niðurskurðar stjórnvalda. Einhverjum þótti hann ekki hafa staðið vel að uppsögnunum og sumum þóttu áherslur hans í hagræðingaraðgerðunum ekki vera réttar. Ingvi Hrafn Óskarsson, formaður stjórnar RÚV ohf., sagði það ekki rétt að Páll hefði ekki notið trausts stjórnarinnar. Illugi Gunnarsson menntamálaráðherra sagði ákvörðun Páls Magnússonar um að hætta sem útvarpsstjóri hafa verið skiljanlega í ljósi aðstæðna. Páll vildi ekkert tjá sig um uppsögn sína þegar leitað var eftir því í gær.Lísa, Helgi og Óli Pallimynd/365Starfsmenn RÚV um brotthvarf Páls Með storminn í fangið mánuðum saman Ólafur Páll Gunnarsson, verkefnastjóri tónlistar á Rás 2, segir að uppsögnin hafi ekki komið sér á óvart eftir allt sem á undan er gengið. „Það þarf sterk bein til að standa með storminn í fangið mánuðum og árum saman án þess að bogna eða brotna og ég skil vel að Páll hafi hugsað sem svo: „Nei, nú nenni ég þessu ekki meir, maður lifir jú bara einu sinni og maður á ekki að eyða lífi sínu í endalaust þras og leiðindi.“ Ég ímynda mér a.m.k. að þetta sé ástæðan fyrir brotthvarfi hans,“ segir hann. Óli Palli telur að brotthvarf Páls auki óvissuástandið sem hefur ríkt á RÚV. „Það er auðvitað óþolandi og drepleiðinlegt. Nógu erfitt hefur ástandið verið undanfarið.“Hann er soddan þrjóskuhaus „Þetta kom mér verulega á óvart af því að hann er soddan þrjóskuhaus. Ég hefði haldið að hann myndi ekki gera þetta,“ segir Lísa Pálsdóttir, dagskrárgerðarmaður á Rás 1. Aðspurð hvernig hafi verið að vinna með Páli segir Lísa: „Ég hef ósköp lítið um það að segja annað en að mér fannst þessar uppsagnir óþarflega ruddalegar. Ég skil ekki að menningarstofnun þurfi að beita sömu aðferð og lyfjafyrirtæki og fjármálastofnanir beita. Af hverju þurfti fólk að fara á þennan hátt?“Hlakkar eflaust í mörgum „Mér þykir þetta ömurlegt, vægt til orða tekið. Fyrir utan þá staðreynd að mér er hlýtt til Páls persónulega og að atburðir undanfarinna vikna hafa vafalaust verið honum jafn erfiðir og okkur, hefur hann reynst mér góður yfirmaður. Hann er blaðamaður og skilur það hlutverk betur en margir yfirmenn þeirra fjölmiðla sem ég hef starfað á,“ segir Helgi Seljan, fréttamaður í Kastljósinu. „Þó ég hafi gagnrýnt þær uppsagnir sem hér urðu, hafi talið og telji enn að þær hafi verið illa framkvæmdar, þá var staðan sem hann var settur í ekki auðveld. Það hlakkar eflaust í mörgum við þessi tíðindi, enda hafa ótrúlegustu hópar náð saman í að gera Pál að einhvers lags holdgervingi þessara súrrealísku tíma.Páll Magnússon, fyrrum útvarpsstjóriÚtvarpsstjóri og nokkur umdeild mál 2013: Margir gagnrýndu Pál Magnússon fyrir það hvernig hann stóð að fjöldauppsögnunum á RÚV á dögunum, þar á meðal Helgi Seljan, starfsmaður RÚV. Sumir óskuðu þess að hann yrði ekki endurráðinn sem útvarpsstjóri. Undirskriftalisti þess efnis var meðal annars settur í gang á netinu.2010: Páll var gagnrýndur, meðal annars af Vinstri grænum og Merði Árnasyni hjá Samfylkingunni, fyrir Audi-jeppa sem hann hafði til umráða en hann var hluti af hlunnindum hans og reiknaðist inn í heildarlaun hans hjá RÚV. Jeppinn þótti vera bruðl með almannafé og svo fór að Páll ákvað að skila honum.2008: Fréttalestur Páls var umdeildur. Félag fréttamanna afþakkaði fréttalesturinn um svipað leyti og það fordæmdi uppsagnir á RÚV. Stjórnarmenn RÚV höfðu einnig gagnrýnt lesturinn. Ekki þótti við hæfi að Páll fengi greitt fyrir hann.2007: Laun Páls voru næstum tvöfölduð skömmu eftir að Ríkisútvarpinu var breytt í opinbert hlutafélag. Launin fóru út 800 þúsundum í 1,5 milljónir króna og þótti sumum nóg um. Launin voru sögð taka mið af breyttu starfssviði útvarpsstjóra, þar á meðal fréttalestri og öðru sem hafði ekki verið á starfssviði hans.
Mest lesið Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Segja boltann hjá stjórnvöldum Innlent Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Innlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Fleiri fréttir Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Sjá meira